Til baka
2 Jan 2023

Vínarveisla í Hofi

Kvennakórinn Embla býður nýja árið velkomið með sannkallaðri Vínarveislu þar sem flutt verða lög úr óperettum, þekktir polkar og sveiflandi vínarvalsar. Meðal þess sem flutt verður má nefna Kampavínssönginn úr Leðurblökunni, Valsasyrpurnar Dóná svo blá, Listamannlíf, Sögur úr Vínarskógi og Vínarblóð eftir Johann Strauss, Vín borg minna drauma, Nótt í Feneyjum, Radetsky marsinn og hina fjörugu Kampavínskviðu ásamt fleirum þekktum lögum frá blómatíð Vínartónlistarinnar.

Einsöngvari með kórnum er stórtenórinn Gissur Páll Gissurarson og Salonghljómsveit Akureyrar leikur með. Stjórnandi er Roar Kvam.

Hefjum árið með bros á vör í ljúfri valsasveiflu, gleðjumst og kætumst og bjóðum nýtt ár velkomið með einstakri tónlistarveislu.

Tónleikarnir fara fram í Menningarhúsinu Hofi sunnudaginn 8. janúar kl. 17. Miðasala á mak.is 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link