Ólafur Arnalds og Talos gefa út lagið “We Didn’t Know We Were Ready,”sem var samið í samstarfi við Niamh Regan og Ye Vagabonds árið 2023. Talos (Eoin French), hinn írski lést hinsvegar í ágúst 2024 aðeins 37 ára að aldri. Fyrir andlát sitt náði hann þó að syngja aðalröddina í þessu lagi sem var tekið upp í samstarfi við Sinfonia Nord og fjölmargir vinir og ættingjar lögðu sín lóð á vogarskálarnar til að gera lagið að því undraverki sem það er.: Sandrayati, The Staves, JFDR, Memorial, Christof van der Ven, Laoise Leahy, Niamh Regan, Ye Vagabonds, Myles O’ Reilly, Ross Dowling, ásamt eiginkonu Eoin’s (Talos) Steph French lögðu öll sína krafta í þessa frábæru tónsmíð og er það mikill heiður fyrir Sinfóníuhljómsveit Norðurlands (Sinfonia Nord) að taka þátt í svo magnaðari tónsmíð og vera hluti af stuttum en mögnuðum tónlistarferli þessa listamanns.. Guð blessi minningu hans.
Tengdar bloggfærslur
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord
Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi
Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi
Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.


