Hof Viðburðahald

Viðburðahald í Hofi

Í Hofi er framúrskarandi aðstaða fyrir ýmsar gerðir viðburða. Fjölbreytt úrval rýma í húsinu gefur kost á að halda þar allt frá litlum stjórnarfundum og námskeiðum upp í fjölmennar ráðstefnur, stórtónleika og veislur tengdar fundum eða ráðstefnum. Starfsfólk Menningarhússins Hofs hefur mikla reynslu af skipulagningu fjölbreyttra viðburða og veitir faglega ráðgjöf auk þess að vera skipuleggjendum innan handar við undirbúning og framkvæmd. Hér að neðan er hægt að sjá salina okkar.

Kynningarbæklingur – Information brochure

Tónleikar og sviðslist

Í Hofi er framúrskarandi aðstaða fyrir ýmiss konar viðburði. Hljómburðurinn í salarkynnum hússins er eins og best verður á kosið og auðvelt er að aðlaga salina að eðli og umfangi ólíkra viðburða. Í Hofi er rúmgóð baksviðsaðstaða, þar sem meðal annars má finna sex búningsherbergi, græna herbergið og aðstöðu fyrir hár og smink.

Fundir og ráðstefnur

Ertu að fara að halda málþing, stjórnarfund, atvinnuviðtöl, námskeið eða stóra ráðstefnu? Í Hofi er fjölbreytt úrval rýma fyrir stór og smá tilefni sem öll eru búin mjög góðum tækjabúnaði. Auk þessa er boðið upp á vinnuaðstöðu fyrir skipuleggjendur funda og veitingaþjónustu fyrir funda- og

Móttökur og veislur

Viltu halda veislu í lok fundar eða ráðstefnu í húsinu? Í Hofi er glæsileg umgjörð fyrir slíkar veislur. 
Menningarhúsið Hof býður upp á glæsilega veisluþjónustu fyrir stóra sem smáa hópa.  Hægt er að halda allt að 500 manna veislur með opnun yfir í nærliggjandi rými. Með því að sameina nokkur rými í húsinu er hægt að halda allt að 1.000 manna móttöku.

Allir salir

Hér að neðan sést yfirlit yfir öll þau rými sem hægt er að leigja í Hofi, hvort sem um er að ræða veislu, ráðstefnu, málþing, stjórnarfund, tónleika, danssýningu eða annan viðburð og verðskrá fyrir hvert fyrir sig.

Secret Link