Hamraborg skapar fullkomna umgjörð fyrir viðburði af ýmsu tagi, hvort sem um er að ræða tónleika, danssýningar, ráðstefnur eða annað

Í salnum er 280 fermetra svið með hljómsveitargryfju og hægt er að aðlaga það að þörfum notenda hverju sinni. Hamraborg hentar sérstaklega vel fyrir rafmagnaða og órafmagnaða tónlist enda hljómburður salarins eins og best verður á kosið. Á veggjum eru hljóðskildir úr timbri og einnig eru hljóðgardínur til dempunar á ómtíma. Í salnum eru 21 flugrá, sviðstjöld og annar búnaður sem notendur hússins geta fengið afnot af.
Fyrir framan inngang Hamraborgar er rúmgóður og fallegur forsalur sem er tilvalinn fyrir móttökur fyrir og/eða eftir viðburði. Þar er einnig staðsettur bar sem alltaf er opinn á undan viðburðum og í hléi. 

Athugið að ekki er hægt að nýta Hamraborg og Hamraborg svið samtímis. 

Búnaður fyrir tónleika og aðra viðburði
Búnaður fyrir tónleika og aðra viðburði
  • Grunntæknibúnaður
  • Hljóðbúnaður
  • 6 hljóðnemar
  • 10 sviðshátalarar
  • 2 hljóðblöndunarborð
  • Snúrur og statíf
  • Ljósabúnaður:
  • 6 Martin TW1
Annar búnaður og þjónusta í boðI
  • Þráðlausir hljóðnemar
  • Hljóðnemar á hljóðfæri
  • Monitorar
  • Fjölrása hljóðmixer
  • Flygill
  • Trommusett
  • Skjávarpi og tjald
  • Promter 42″ skjár + tölva
Búnaður fyrir fundi
Innifalið Í SALARLEIGU
  • Skjávarpi
  • Tjald
  • Tölva
  • 10 sviðshátalarar
  • 2 hljóðblöndunarborð
  • Snúrur og statíf
  • Grunnlýsing: 6 Martin TW1, 6 Source4 110V,
  • Ræðupúlt með hljóðnema
Annar búnaður og þjónusta í boðI
  • Pallborðshljóðnemar
  • Þráðlausir hljóðnemar
  • Fluguhljóðnemar + móttakari
  • Skjár á rúllustandi
  • Auka tölva
  • Afnot af flygli
  • Töskugeymsla
  • Tæknimaður 
Salarleiga
Hámarksnýting:
509 manns
Stærð: 700 m²
þar af 266 m² svið fm

Verð

5 klst. – 300.500 kr.+ vsk
10 klst. – 445.200 kr.+ vsk

Greiða þarf fyrir yfirsetu tæknimanna og þjónustu framhúss á öllum viðburðum í Hamraborg. 

Bóka fundarherbergi

Allir salir

Hér að neðan sést yfirlit yfir öll þau rými sem hægt er að leigja í Hofi, hvort sem um er að ræða veislu, ráðstefnu, málþing, stjórnarfund, tónleika, danssýningu eða annan viðburð.

Secret Link