Kennsluáætlun
Leiklistarskóli Leikfélags Akureyrar – Kennsluáætlun
FORNÁM – einbeiting og opnun
Fókus, rýmisvitund, ímynduraflið, sköpun, samvinna, sjálfið.
Fókus
– Að halda sig við efnið
– Standa kyrr
– Fylgja leiðbeiningum
– Einbeita sér
– Hlusta
Rýmisvitund
– Snúa fram
– Vita hvar þú ert í rýminu
– Vera sýnilegur
– Taka pláss
– Vita hvar aðrir og annað er í rýminu
Ímyndunaraflið og sköpun
– Láta sig dreyma
– Gefa hlutum nýja merkingu
– Hlutverkaleikir
– Að þykjast
– Finna lausnir
– Koma með hugmyndir
Líkami
– Líkamsmeðvitund
– Standa í fæturna– líkamsburður
– Líkaminn í rýminu (almenna og persónulega)
– Líkamlegt traust (snerting, traust)
Rödd
– Tengsl við líkama
– Raddbeiting (tjáning í gegnum raddbeitingu)
– Öndun
Sjálfið og samvinna
– Þora að viðra hugmyndir og prófa sig áfram
– Treysta sjálfum sér
– Þora að spyrja
– Hlusta á aðra
– Treysta öðrum
– Umburðarlyndi – við erum öll ólík
EFSTA DEILD – Grunntækni leiklistar og notkun hennar í persónusköpun og frásögn.
Persónusköpun, frásagnarform, líkami, rödd, gagnrýnin hugsun, sjálfstæð vinnubrögð, samvinna.
Einföld heimavinna til að brúa á milli. Ekki bara handritsvinna. Eitthvað tengt tímanum sem þau voru í síðast.
Persónusköpun
– Ásetningur/mat á aðstæðum
– Ímyndunaraflið til að setja sig í spor annarra (synd og dyggð, tilfinningar koma bara)
– Líkömnun hugsana og tilfinninga (ástæðan fyrir grunnvinnu með líkama)
– Sambönd (status, hvað finnst mér)
– Textameðferð (tilfinning og hugsun hefur áhrif á hvernig texti er sagður)
Líkami – heildræn nálgun
– Líkamsmeðvitund
– Frelsi til tjáningar
– Standa í fæturna – líkamsburður
– Líkaminn í rýminu (almenna og persónulega)
– Líkamlegt traust (snerting, traust)
– Frásögn með líkama (líkamsburður segir ákveðna sögu), líkömnun hugsana og tilfinninga
Rödd – heildræn nálgun
– Tengsl við líkama
– Raddbeiting (tjáning í gegnum raddbeitingu)
– Öndun
– Frelsi til tjáningar (breyta rödd, raddsvið)
Sjálfstæð vinnubrögð og gagnrýnin hugsun
– Að þjálfa þau í að eigna sér vinnuna (ekki fóðra þau endalaust)
– Spyrja spurninga
– Taka þátt í umræðum
– Gerð ímyndunarafls (passive og active)
– Eigna sér vinnuna
– Gefa sér tíma, mistök, gerjun (listræna ferlið)
Frásagnarform
– Uppbygging sögu (upphaf miðja endir), uppbygging sögu hvers karakters.
– Innihald (um hvað er verkið (30% dýpt, farið að búa til setningar, konsept, sögn verksins)
– Mismunandi leikstílar – kynna fyrir þeim. Hvaða leikstíll er okkar verk. (drama, gaman, melódrama, söngleikur, ævintýri, spenna, o.s.frv.)
Sjálfið og samvinna
– Þora að viðra hugmyndir og prófa sig áfram
– Treysta sjálfum sér
– Þora að spyrja
– Hlusta á aðra
– Treysta öðrum
– Umburðarlyndi – við erum öll ólík
– Setja sjálfan sig til hliðar og styðja aðra (fyrir verkefnið)