Leikfélag Akureyrar
Leiklistarskóli LA
Leiklistarskóli Leikfélags Akureyrar býður upp á markvisst nám í leiklist fyrir börn í 2.-10. bekk grunnskólanna. Kennsla fer fram í Menningarhúsinu Hofi, í Undirheimum. Tekið er við nýskráningum í byrjun haustannar sem og í byrjun vorannar.
Um Leikfélag Akureyrar
Um Leikfélag Akureyrar
Leikfélag Akureyrar er eina samfellt starfandi atvinnuleikhús landsins utan höfuðborgarsvæðisins og hefur verið atvinnuleikhús frá árinu 1973. Saga Leikfélagsins spannar yfir meira en heila öld og má rekja sögu þess aftur til ársins 1906.
Leikfélag Akureyrar hefur sitt aðal aðsetur í fallegu húsi sem stendur nærri hjarta Akureyrar, Samkomuhúsinu, sem tekur 210 manns í sæti. Samkomuhúsið er hefðbundið leikhús með sviði, upphækkuðum sal og svölum og var vígt á Þorláksmessu árið 1906. Frá árinu 2010 hafa sýningar Leikfélags Akureyrar einnig farið fram í menningarhúsinu Hofi.
Um Leikfélag Akureyrar
Samkomuhúsið
Samkomuhúsið Hafnarstræti er með glæsilegustu húsum landsins frá byrjun 20. aldar. Það nýtur sín ákaflega vel í bæjarmyndinni, á Barðsnefi, og er eitt helsta kennileiti Akureyrar, glæsilegt og háreist. Í húsinu hefur átt sér stað merkur kafli í leiklistarsögu Íslendinga en þar hefur verið leikið samfleytt í yfir heila öld.
Húsið er í eigu Akureyrarbæjar. Leikfélag Akureyrar hefur alla tíð rekið starfsemi sína þar og eru afnot af húsinu hluti af styrk Akureyrarbæjar til leikfélagsins. Í húsinu er aðalsvið Leikfélags Akureyrar og Borgarasalurinn.
Leikskrár
Hér finnur þú nýlegar leikskrár Leikfélags Akureyrar
Jóla Lóla
2025
Jólaglögg
2025
Elskan, er ég heima?
2025
Litla Hryllingsbúðin
2024-2025