Leiklistarskóli LA

Leiklist er fyrir alla

Leiklistarskóli Leikfélags Akureyrar býður upp á markvisst nám í leiklist fyrir fólk á öllum aldri

Haustönn hefst 7. september

Leikgleði – Sköpun – Samvinna

Markmið skólans er að þjálfa nemendur í grunnatriðum leiklistar og hjálpa þeim að kynnast sjálfum sér, mannlegu eðli og samfélaginu. Þau læra einnig aga, umburðarlyndi og samvinnu í gegnum hópavinnu. Þá verður sérstaklega unnið að því að bæta sjálfsöryggi þeirra og finna styrkleika hvers nemanda.
Einkunnarorð skólans eru: Leikgleði – Sköpun – Samvinna.

Fjögur námsstig eftir aldri

Kennt er í fjórum deildum: Fornám, Grunndeild, Miðdeild og Unglingadeild. Hver hópur hefur eigin áherslur sem miðast við aldur og færni nemenda.

Tvær annir – með mismunandi áherslum

Skólaárið skiptist í haust- og vorönn, hvor um sig 12 vikur. Á haustönn er áhersla á að styrkja undirstöður í leiklist hjá nemendum og seinni önn fer í að æfa fyrir lokadag eða lokasýningu deildarinnar. Í ár verða unnin verk með forskrifuðum handritum og verður áherslan á karaktersköpun, textameðferð og tjáningu.

Haustönn 2026 hefst 7. september og lýkur 4. desember

Frekari upplýsingar um vorönn koma síðar.

Deildir og aldurshópar

Deildir Leiklistarskólans

Sjálfstraust, leikgleði og sköpun í hverjum tíma

Við leggjum áherslu á að börnin öðlist leikgleði, sjálfstraust og læri að vinna saman. Námið styrkir bæði einstaklinginn og hópinn, og stuðlar að persónulegum og félagslegum þroska.

Kennsla fer fram í Undirheimum – Kennslurýminu okkar í kjallaranum í Hofi Mögulegt er að hópum verði fjölgað eða þeir sameinaðir eftir fjölda umsókna Skólastjóri: Jenný Lára Arnórsdóttir Hafa skal samband á netfangið lla@mak.is ef einhverjar spurningar vakna

Fyrir nánari upplýsingar og fyrirspurnir skal hafa samband á lla@mak.is

Skráðu þig hér

Kennsluáætlun

  • Skráning hefst 1. ágúst
  • Haustönn hefst 7. september
  • Mögulegt er að hópum verði fjölgað eða þeir sameinaðir eftir fjölda umsókna
Stundaskrá 26/27 Skóladagatal 26/27
Secret Link