Um Leikfélag Akureyrar
Leikhús með hjarta og sögu
Um Leikfélag Akureyrar
Það er alltaf einstök upplifun að fara í leikhús á Akureyri. Frábært leikhús, metnaðarfullar sýningar og skemmtileg upplifun frá upphafi til enda.
Leikfélag Akureyrar er eina atvinnuleikhús landsins utan höfuðborgarsvæðisins og hefur starfað sem slíkt frá árinu 1973.
Saga Leikfélagsins spannar yfir meira en heila öld og má rekja sögu þess aftur til ársins 1906.
Leikfélag Akureyrar hefur sitt aðal aðsetur í fallegu húsi sem stendur nærri hjarta Akureyrar, Samkomuhúsinu, sem tekur 210 manns í sæti. Samkomuhúsið er hefðbundið leikhús með sviði, upphækkuðum sal og svölum og var vígt á Þorláksmessu árið 1906.
Frá árinu 2010 hafa sýningar Leikfélags Akureyrar einnig farið fram í menningarhúsinu Hofi.
Fjölbreytt verkefnaskrá
Verkefnaskrá Leikfélags Akureyrar hefur í gegnum tíðina verið fjölbreytt og innihaldið klassísk og ný verk, íslensk og erlend verk, barnaleikrit og söngleiki. Fjöldi nýrra íslenskra verka hefur verið frumsýndur hjá Leikfélagi Akureyrar og listamenn Leikfélagsins vinna reglulega með listamönnum sem einbeita sér að frumsköpun. Gestir Leikfélags Akureyrar koma frá landinu öllu og í gegnum tíðina hefur verið vinsælt að fara í leikhúsferðir til Akureyrar til að sjá þær leiksýningar sem eru á boðstólum.
Félagið
Leikfélag Akureyrar er opið félag sem allir geta sótt um aðild að sem áhuga hafa á leikhússtarfi, hvort heldur einstaklingar eða lögaðilar.
Aðalfundur félagsins er haldinn í október ár hvert en einnig eru haldnir félagafundir þess á milli.
Félagsgjald þessa árs er kr. 4.000,-
Leikarar
Hér má finna upplýsingar um leikara núverandi og seinustu
leikára
Skoðaðu leikara sem hafa tekið þátt í sýningum síðustu ára – bæði núverandi og fyrrverandi meðlimi Leikfélags Akureyrar.
Samkomuhúsið í Hafnarstræti
Samkomuhúsið Hafnarstræti er með glæsilegustu húsum landsins frá byrjun 20. aldar. Það nýtur sín ákaflega vel í bæjarmyndinni, á Barðsnefi, og er eitt helsta kennileiti Akureyrar, glæsilegt og háreist. Í húsinu hefur átt sér stað merkur kafli í leiklistarsögu Íslendinga en þar hefur verið leikið samfleytt í yfir heila öld.
Lesa nánar um Samkomuhúsið
Leikfélag Akureyrar
Leikhússtjórar Leikfélags Akureyrar frá upphafi

Bergur Þór Ingólfsson
2024-

Marta Nordal
2018-2024

Jón Páll Eyjólfsson
2014-2017

Ragnheiður Skúladóttir
2012-2014

María Sigurðardóttir
2008-2011

Magnús Geir Þórðarson
2004-2008

Þorsteinn Bachmann
2002-2004

Sigurður Hróarsson
1999-2002

Trausti Ólafsson
1996-1998

Viðar Eggertsson
1993-1995

Signý Pálsdóttir
1991-1993

Sigurður Hróarsson
1989-1991

Pétur Einarsson
1986-1988

Signý Pálsdóttir
1982-1986

Oddur Björnsson
1978-1980

Brynja Benediktsdóttir
1977-1978

Eyvindur Erlendsson
1974-1977
