Samkomuhúsið
Samkomuhúsið í Hafnarstræti
Samkomuhúsið Hafnarstræti er með glæsilegustu húsum landsins frá byrjun 20. aldar. Það nýtur sín ákaflega vel í bæjarmyndinni, á Barðsnefi, og er eitt helsta kennileiti Akureyrar, glæsilegt og háreist. Í húsinu hefur átt sér stað merkur kafli í leiklistarsögu Íslendinga en þar hefur verið leikið samfleytt í yfir heila öld.
Samkomuhúsið
Tímalína Samkomuhússins
Saga Samkomuhússins spannar rúmlega heila öld og markar ótal tímamót í leiklistar- og menningarsögu Akureyrar. Hér er stiklað á stóru yfir helstu árin og atburðina sem mótuðu húsið.
1906
Bygging hússins
Það voru stúkurnar Trúföst og Ísafold sem létu byggja húsið árið 1906. Framkvæmdir hófust um vorið og Guðlaugur Guðmundsson bæjarfógeti vígði húsið 23. desember sama ár. Byggingarferlið á þessu stóra húsi tók ótrúlega skamman tíma, og allt gert með handverkfærum. Með húsgögnum kostaði húsið fullsmíðað 28.500 krónur. Yfirsmiðir voru þeir Guðmundur Björnsson og Guðmundur Ólafsson frá Steinhóli í Skagafjarðarsýslu. Bærinn lagði sitt af mörkum með því að ábyrgjast lán og leigja neðstu hæð hússins fyrir lestrarsal, bókasafn og bæjarstjórnarfundi. Bærinn keypti síðar húsið af templurum, eða árið 1917.
1907
Fyrsta leiksýningin og stofnun Leikfélags Akureyrar (hins eldra)
Fyrsta leiksýningin á fjölum hússins var frumsýnd 20. janúar 1907, Ævintýri á gönguför, og leikstýrði sjálfur Guðlaugur bæjarfógeti sýningunni. Aðgangseyrir rann til nýja leikhússins. Um þessar mundir var ekkert eiginlegt leikfélag starfandi á Akureyri, en einstaklingar og hópar sýndu sýningar og skemmtu áhorfendum, og oftar en ekki rann ágóði þessara uppákoma til hússins. leiksýninga og skemmtana var salurinn notaður til fundarhalda, þar voru haldnir þingfundir auk þess sem alþingis- og bæjarstjórnarkosningar fóru þar fram. Á jarðhæðinni var Amtbókasafn Akureyrar til húsa, þar var póstafgreiðsla og um tíma var öll hæðin lögð undir bæjarskrifstofur. Bæjarstjórnarfundir voru haldnir á efri hæð í norðurenda hússins, nú Borgarasal. Þar héldu einnig templarar fundi sína.
Leikfélag Akureyrar (hið eldra) var stofnað ári síðar, eða 1908, og síðan þá hefur verið leikið nær óslitið í húsinu. Megnið af húsinu var undir stóran sal, með leiksviði og hliðarherbergjum. Þessi salur var einn aðal skemmtistaður bæjarbúa. Líklegt er að í byrjun aldarinnar hafi húsið verið stærsta leikhús landsins. Líkt og nú er, voru svalir á þrjá vegu, á hliðarveggjum og í norðurenda en þá voru áhorfendabekkir einnig á svölum á vestur og austurvegg, hvar nú er einungis gönguleið. Súlur studdu svalirnar og milli þeirra voru bogadregnar brúnir, og einnig yfir sviðinu, allt var skrautmálað.
1917
Húsið keypt af Akureyrarbæ
Bærinn keypti húsið af templurum, eftir að hafa áður leigt neðstu hæðina til lestrarsalar, bókasafns og bæjarstjórnarfunda.
1920
Nýtt anddyri byggt
Anddyri hússins, sá hluti þar sem áhorfendur ganga ínn í Samkomuhúsið og upp bogadreginn stiga, var byggt árið 1920. Auk anddyris voru í viðbyggingunni tvær stofur, sennilega þar sem nú er fatahengi, og snyrtingar. Á síðari árum var einnig reist viðbygging vestan við húsið sem ætluð var leikurum. Sá hluti byggingarinnar hvíldi á nokkrum stöplum og var að hruni kominn þegar hann var loks rifin árið 2003 og ráðist var í viðbygginguna sem nú gengur eftir allri vesturhlið hússins. Allt fram að þeim tíma, máttu leikarar og þeir sem að sýningum komu hlaupa út undir bert loft og eftir nokkurra metra langri trébrú til að komast inn á sviðið úr kaffistofu.
1950
Endurbætur á aðalsal
Aðalsalur hússins hélst óbreyttur til ársins 1950, en þá var hann færður í það horf sem þótti betur hæfa leikhúsi. Svalirnar voru fjarlægðar af austur og vestur vegg, einnig boginn yfir leiksviðinu. Þá var gert hallandi gólf og komið fyrir föstum sætum.
1996
Ný sæti og útlit
Árið 1996 fékk salurinn andlitslyfingu, en þá var skipt um áhorfendabekki og salurinn fékk það útlit sem hann hefur nú. Gömlu bekkirnir með dökkrauða snjáða leðrinu voru seldir, þrjú og þrjú sæti saman og seldist hvert einasta sæti á augabragði, hraðar en á nokkra leiksýningu og fengu færri en vildu.
2003
Gamla viðbyggingin rifin
Á síðari árum var reist viðbygging vestan við húsið sem ætluð var leikurum. Sá hluti byggingarinnar hvíldi á nokkrum stöplum og var að hruni kominn þegar hann var loks rifinn árið 2003.
2004
Stórar endurbætur
byrjun árs 2004 réðst Akureyrarbær enn í glæsilegar endurbætur á húsinu og byggð var viðbygging á tveimur hæðum eftir endilangri vesturhlið hússins eins og áður sagði. Virkni ehf. sá um þær framkvæmdir. Aðstaða fyrir leikara varð þá mun betri en áður var. Þá voru gerðar endurbætur á anddyri hússins, miðhæðinni, þar sem áður var lítill veitingasalur og á Borgarasal. Úr Borgarasal er útgengt á svalir sem eru á þaki viðbyggingarinnar. Einnig var sett lyfta í húsið og aðgengi fatlaðra bætt. Þá var allt nánasta umhverfi hússins fært í fallegra horf, bæði brekkan ofan hússins, gatan og bílastæði.
Húsið er enn í eigu Akureyrarbæjar og Leikfélag Akureyrar mun áfram hafa þar aðsetur, enda þessi tvö fyrirbæri, Samkomuhúsið og Leikfélag Akureyrar nánast staðgenglar fyrir hvort annað, svo samofin er saga þeirra.
Aðrar upplýsingar
Saga Samkomuhússins er ekki aðeins tengd leiksýningum, heldur einnig félagslífi og stjórnsýslu Akureyrar í rúma öld. Húsið hefur hýst ólík hlutverk og endurspeglar þannig mikilvægi sitt í menningarlífi bæjarins.
Eigandi hússins
Húsið er í eigu Akureyrarbæjar og afnot Leikfélags Akureyrar eru hluti af styrk bæjarins.
Leikfélag Akureyrar
Leikfélagið hefur alla tíð rekið starfsemi sína þar. Í húsinu eru aðalsvið félagsins og Borgarasalurinn.
Fundarhöld og stjórnsýsla
Auk leiksýninga var salurinn notaður til fundarhalda, þingfunda, bæjarstjórnarfunda og kosninga.
Jarðhæð og aðstaða
Á jarðhæðinni var Amtbókasafn Akureyrar, póstafgreiðsla og um tíma bæjarskrifstofur.
Borgarasalur og templarar
Bæjarstjórnarfundir voru haldnir á efri hæð í norðurenda hússins, nú Borgarasal, þar sem templarar héldu einnig fundi sína.