Menningarfélag Akureyrar

Gullkort Menningarfélagsins

Leikárið 2025-2026 er magnað, viðburðaríkt og stórskemmtilegt!
Skráðu þig í áskrift og skemmtu þér með okkur í allan vetur!
Áskriftin gildir á viðburði framleidda af Menningarfélagi Akureyrar.

Gullkort Menningarfélags Akureyrar eru þrjú;

Gullkort klassík, Gullkort plús og Gullkort ungmenna!

Miðasala

Við tökum vel á móti þér í miðasölu Menningarfélagsins
Miðasalan okkar á netinu er alltaf opin.
Opnunartími miðasölunnar í Menningarhúsinu Hofi er opin:
Virka daga kl. 13-16
Um helgar opnar miðasalan tveimur tímum fyrir viðburði.

Um Menningarfélag Akureyrar

Menningarfélag Akureyrar er sjálfseignarstofnun sem samanstendur af þremur menningarstofnunum á Akureyri; Leikfélagi Akureyrar, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Menningarfélaginu Hofi.

Sameiningin tók í gildi árið 2014 og er markmiðið að skapa öflugan vettvang fyrir þrjár af stærstu menningarstofnunum á Norðurlandi til að starfa saman, sækja fram í menningarlífi á Akureyri og efla enn frekar þá starfsemi sem þessir aðilar hafa staðið að. Í allri vinnu er áhersla lögð á aukna og bætta starfsemi, listrænt sjálfstæði, minni yfirbyggingu og hagræðingu í rekstri.

Fiðringur

Fiðringur er dýrmætur vettvangur fyrir unglingana á Norðurlandi eystra til að láta rödd sína heyrast.

Fiðringur á Norðurlandi var fyrst haldinn árið 2022. Skrekkur í Reykjavík og Sjálftinn á Suðurlandi eru fyrirmyndir Fiðrings sem er dýrmætur vettvangur fyrir unglingana á Norðurlandi til að láta rödd sína heyrast og sinna listsköpun með jafnöldrum.

Allt frá 8 og uppí 12 skólar hafa tekið þátt á hverju ári og er það von verkefnastýra að í framtíðinni taki þátt allir grunnskólar sem vettlingi geta valdið frá Borðeyri til Bakkafjarðar!

Upptakturinn 2025

Opið fyrir umsóknir frá 10. janúar – 16. febrúar á miðnætti.
Hlökkum mikið til að taka á móti hugmyndum að tónlistarverkum ykkar! 

VERÐANDI Listsjóður

VERÐANDI er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Menningarfélagsins Hofs og Menningafélags Akureyrar.

Helstu markmið sjóðsins eru að:

Auðvelda ungu listafólki og þeim sem standa utan stofnanna að nýta sér þá fyrirmyndar aðstöðu sem Hof býður upp á.

Stuðla að fjölbreytileika í listviðburðum í Hofi.

Nýta þá möguleika sem Hof býður uppá fyrir fjölbreytta viðburði.

Nánar
Secret Link