Miðasala
Miðasala opnunartími
Við tökum vel á móti þér í miðasölu Menningarfélagsins
Miðasalan okkar á netinu er alltaf opin.
Opnunartími miðasölunnar í Menningarhúsinu Hofi er opin:
Virka daga kl. 13-16
Um helgar opnar miðasalan tveimur tímum fyrir viðburði.
Hægt er að kaupa staka miða og gjafakort hér á vefnum.
Gjafakort Menningarfélagsins
Ómetanleg gjöf fyrir alla
Við bjóðum upp á úrval gjafabréfa sem henta ungum sem öldnum. Hægt er að kaupa þau á netinu eða kíkja til okkar í miðasöluna í Hof og fá þau útprentuð.
Sjá nánarGullkort Menningarfélagsins
Gulltryggðu þér bestu sætin á viðburði vetrarins
Skráðu þig í áskrift og skemmtu þér með okkur í allan vetur!
Áskriftin gildir á viðburði framleidda af Menningarfélagi Akureyrar og má sjá úrvalið með því að smella á kortin.
Gullkort Menningarfélags Akureyrar eru þrjú;
Gullkort klassík, Gullkort plús og Gullkort ungmenna!

Skilmálar miðakaupa
Hér finnur þú skilmálana okkar er miðakaup varðar
Til að öll geti notið viðburðanna er mælst til þess að gestir sýni öðrum gestum og starfsfólki almenna virðingu í orðum og gjörðum. Menningarfélagið áskilur sér rétt til að vísa fólki frá sem sýnir af sér ósæmilega eða ógnandi hegðun.
Vinsamlegast farið vel yfir miðakaupin þegar þau eiga sér stað. Það kemur fyrir að ekki er hægt að leiðrétta miðakaup eftirá.
Greiða þarf fyrir aðgöngumiða fyrir öll börn á sýningar og ekki er leyfilegt að sitja undir barni.
Miði telst notaður hafi honum ekki verið breytt í síðasta lagi 48 tímum fyrir sýningu á framleiðslu viðburða Menningarfélags Akureyrar.
Menningarfélag Akureyrar og aðstandendur viðburða bera enga ábyrgð á persónulegum munum miðaeigenda fyrir, á meðan, eða eftir að viðburði lýkur.
Þegar þú hefur keypt miða hjá Menningarfélagi Akureyrar, í gegnum vefinn eða síma, hefur þú 14 daga frá miðakaupum til þess að falla frá kaupunum og óska eftir endurgreiðslu á miðanum. Ef viðburður sá sem keyptur er miði á er haldinn innan 14 daga frá miðakaupum átt þú hins vegar í engum tilvikum rétt á endurgreiðslu eða rétt til þess að skipta miðanum fyrir annan viðburð nema í þeim tilvikum er viðburður fellur niður.
Algengar spurningar
Nei, það er ekki nauðsynlegt að prenta miðann út. Það er nóg að sýna miðann í símanum.
Keyptur miði er alltaf aðgengilegur í miðasölukerfi Menningarfélags Akureyrar og er því
ekki glataður. Þú getur hringt í miðasöluna í síma 450 1000 eða komið við í Hofi milli
13-18 virka daga og nálgast miðann þinn.
Samkvæmt skilmálum Tix eru möguleiki á að fá endurgreiðslu á miðum í 14 daga frá kaupum.
Ef lengra er síðan þú keyptir miðann er því miður ekki hægt að fá endurgreiðslu.
Þetta á hinsvegar ekki við um beiðnir sem berast þegar minna en 14 dagar eru í viðburð,
ef um aðgöngumiða er að ræða.
Ef viðburður fellur niður, þá er eigendum miða boðnir sambærilegir miðar á næstu dagsetningu
eða full endurgreiðsla á miða.
Fréttir
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord
Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi
Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi
Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.


