Skilmálar
Afbókunarskilmálar & Miðasöluskilmálar
Hægt er að taka frá rými í 2 vikur til bráðabirgða.
Að þeim tíma loknum ber leigutaka að greiða staðfestingargjald.
Staðfestingargjald er 30% af grunnleiguverði og gengur uppí leigu.
Hafi staðfestingargjald ekki borist á tilskildum tíma lítur Menningarfélag Akureyrar svo á að bókunin sé afturkölluð og getur boðið öðrum dagana til afnota án viðvörunar til leigutaka.
Annar kostnaður vegna viðburðarins verður innheimtur eftir að viðburður hefur farið fram.
Greiðsluskilmálar: 14 dagar. Eftir það bætast vextir við upphæðina í samræmi við íslensk lög.
Afbókun rýmis
Miðað er við daginn sem viðburðurinn er afbókaður og þann dag sem hann átti að eiga sér stað
91 dagur eða meira – Full endurgreiðsla staðfestingargjalds
31-60 dagar í viðburð – 50% af grunnleigu (30% staðfestingargjald dregið frá)
30 dagar eða minna – 80% af grunnleigu
(30% staðfestingargjald dregið frá)
Skilmálar miðakaupa
Hér finnur þú skilmálana okkar er miðakaup varðar
Til að öll geti notið viðburðanna er mælst til þess að gestir sýni öðrum gestum og starfsfólki almenna virðingu í orðum og gjörðum. Menningarfélagið áskilur sér rétt til að vísa fólki frá sem sýnir af sér ósæmilega eða ógnandi hegðun.
Vinsamlegast farið vel yfir miðakaupin þegar þau eiga sér stað. Það kemur fyrir að ekki er hægt að leiðrétta miðakaup eftirá.
Greiða þarf fyrir aðgöngumiða fyrir öll börn á sýningar og ekki er leyfilegt að sitja undir barni.
Miði telst notaður hafi honum ekki verið breytt í síðasta lagi 48 tímum fyrir sýningu á framleiðslu viðburða Menningarfélags Akureyrar.
Menningarfélag Akureyrar og aðstandendur viðburða bera enga ábyrgð á persónulegum munum miðaeigenda fyrir, á meðan, eða eftir að viðburði lýkur.
Þegar þú hefur keypt miða hjá Menningarfélagi Akureyrar, í gegnum vefinn eða síma, hefur þú 14 daga frá miðakaupum til þess að falla frá kaupunum og óska eftir endurgreiðslu á miðanum. Ef viðburður sá sem keyptur er miði á er haldinn innan 14 daga frá miðakaupum átt þú hins vegar í engum tilvikum rétt á endurgreiðslu eða rétt til þess að skipta miðanum fyrir annan viðburð nema í þeim tilvikum er viðburður fellur niður.