Stefna Menningarfélags Akureyrar
Menningarfélag Akureyrar
– Skapandi aflvaki til framtíðar
Menningarfélag Akureyrar er fjölbreytt, skapandi og áræðið með djúpar rætur í hefð og sögu klassískrar tónlistar og leiklistar. MAk vill rækta og auðga samfélag sitt með framleiðslu listviðburða með sterka samfélagslega tengingu ásamt því að vera eftirsóknarverður vettvangur fyrir listviðburði, fundi og ráðstefnur af landinu öllu.
MAk er þungamiðja öflugs menningarstarfs þar sem flestir angar lista- og menningarlífs dafna og blómstra. Það skapar ný samfélagsleg verðmæti með því að hlúa að frumsköpun og gefur ungu fólki tækifæri til að eiga stefnumót við áhorfendur.
Þess er gætt að kynjahlutföll í verkefnum og ráðningum séu jöfn. Umhverfissjónarmiða er gætt í allri starfsemi og notkun á hráefnum höfð í lágmarki.
Framtíðarsýn og Stefna MAk
Í stefnu MAk er megináhersla lögð á að efla atvinnustarfsemi í sviðslist og sinfónískri tónlist á Akureyri ásamt því að ýta frekar undir aðdráttarafl Hofs og Samkomuhússins fyrir listviðburði, fundi og ráðstefnur. Menningarfélag Akureyrar er gróðurhús fyrir hugmyndir, staður þar sem draumar geta ræst. Rauði þráðurinn í nýrri stefnu MAk er stóraukinn listrænn og samfélagslegur ávinningur og rekstur í sátt við umhverfi og samfélag.
Viðburðasvið – Menning fyrir alla
Viðburðasvið Hofs og Samkomuhússins er þungamiðja menningarstarfs utan höfuðborgarsvæðisins og miðstöð menningar með sterka samfélagslega tengingu. Áhersla er lögð á fjölbreytta dagskrá og þverfaglegt samstarf við menningarstofnanir, listafólk og hagsmunaaðila.
Viðburðasvið vill:
- Vera eftirsóknarverður vettvangur fyrir viðburði og listafólk alls staðar að.
- Bjóða besta tæknibúnað og þjónustu hverju sinni.
- Vera miðstöð menningar og áningarstaður fyrir gesti.
- Efla samstarf við aðra aðila á Akureyri og landsvísu.
- Auka sýnileika og aðgengi á heimasíðu (verðskrá, myndir, bókanir).
Leiklistarsvið – Raddir samfélagsins
Leikfélag Akureyrar starfar út frá gildum um aðgengi, mennsku, fjölbreytileika og forvitni.
Markmið:
Gróðurhús hugmynda – Leiklistarskóli og frumsköpun
Leikfélagið rekur öflugan leiklistarskóla fyrir grunnskólanemendur í 3.–10. bekk.
- Rækta frumsköpun, rödd og líkamstjáningu.
- Stuðla að samfélagslegri þátttöku í listum.
- Vera miðstöð menningar og áningarstaður fyrir gesti.
- Halda sýningar sem spegla samfélag og veita ungu fólki rödd.
- Kynna starfsemi fyrir grunnskólum og efla listvitund ungmenna.
Tónlistarsvið – SN sem brú milli stefna og kynslóða
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er nútímaleg, fjölhæf og verkefnadrifin.
SN:
Framtíðarsýn tónlistarsviðs
Tónlistarsvið MAk vill:
- Vera miðstöð fyrir sinfóníska tónlist og upptökur
- Byggja upp hljóðver í Hofi
- Efla framlag til SN úr menningarsamningi og sjálfsaflafé
- Auka verkefnafjölda: tónleikar, þjónusta, fræðsla
- Vinna með Tónlistarskóla Akureyrar og styrkja listarkonur
- Styðja nýsköpun og vera segull á tónskáld og hljómsveitarstjóra
Mannauðsstefna – Velgengni í gegnum vellíðan
Hjá MAk er lögð áhersla á:
SN: