Um Menningarfélag Akureyrar


Menningarfélag Akureyrar


Menningarfélag Akureyrar er sjálfseignarstofnun sem sprottin er af þremur menningarstofnunum á Akureyri;

Leikfélagi Akureyrar, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Menningarfélaginu Hofi. Sameiningin tók í gildi árið 2014 og er markmiðið að skapa öflugan vettvang til að efla menningarlíf og menningartengda ferðaþjónustu. Í allri vinnu er áhersla lögð á aukna og bætta starfsemi, listrænt sjálfstæði, minni yfirbyggingu og hagræðingu í rekstri. 

Markmið Menningarfélagsins

Efla leiklist og tónlist

Efla atvinnustarfsemi í leiklist og sinfónískri tónlist á Akureyri. 

Bjóða fyrirmyndarvettvang

Bjóða fyrirmyndarvettvang fyrir tónlistar- og sviðslistaviðburði, fundi og ráðstefnur. 

Öruggur rekstur

Stuðla að öruggum rekstri og góðri meðferð og nýtingu opinberra fjármuna. 

Aukið framboð og fjölbreytileiki

Stuðla að auknu framboði og fjölbreytileika í menningar- og listalífi Norðurlands. 

Samstarf og samræming

Tryggja samstarf og samræmingu viðburða milli stofnaðilanna þriggja. 

Starfsfólk Menningarfélags Akureyrar

Bak við hverja sýningu og viðburð stendur metnaðarfullt teymi.

Menningarfélag Akureyrar reiðir sig á fjölbreyttan hóp starfsfólks sem leggur sitt af mörkum við daglegan rekstur, skipulagningu viðburða og sköpun menningar í bænum.

Við erum stolt af samhentu og reynslumiklu starfsfólki sem sinnir störfum sínum af fagmennsku og alúð.

20
fastráðnir starfsmenn
3
3 svið – eitt sameiginlegt markmið
400+
viðburðir á síðasta ári

Skipurit Menningarfélags Akureyrar

Aðgengi og staðsetning – Menningarhúsið Hof

Menningarhúsið Hof er staðsett í miðbæ Akureyrar og er eitt af helstu kennileitum bæjarins. Aðalinngangur Hofs snýr í norðvestur. Útsýni er úr húsinu í allar áttir. Einnig er hægt að ganga út og inn um húsið að suðaustanverðu. Við aðalinnganginn er rennihurð og sunnanmegin er vængjahurð.

Aðkoman sunnanmegin hússins er mjög heillandi fyrir siglingafólk á minni bátum sem leggja við bryggju tengda húsinu, ferðamenn og aðra gesti. Einnig er hægt að ganga inn í húsið um forsalinn en opnun á þeim inngangi er háð þeim viðburðum sem þar fara fram.

Nánar um aðgengi við Menningarhúsið Hof


Aðgengi og staðsetning | Samkomuhúsið

Samkomuhúsið á Akureyri við Hafnarstræti 57, er með glæsilegustu húsum landsins frá byrjun 20. aldar. Það nýtur sín ákaflega vel í bæjarmyndinni, á Barðsnefi, og er eitt helsta kennileiti Akureyrar, glæsilegt og háreist. Í húsinu hefur átt sér stað merkur kafli í leiklistarsögu Íslendinga en þar hefur verið leikið samfleytt í yfir heila öld.

Nánar um aðgengi við Samkomuhúsið

Stjórn

Stjórn Menningarfélags Akureyrar er skipuð fjórum aðilum, þ.e. einum fulltrúa frá hverjum stofnaðila ásamt fulltrúa Akureyrabæjar sem jafnframt er formaður:

Preben Pétursson, formaður stjórnar 

Lára Sóley Jóhannsdóttir, fulltrúi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands 

Jóhanna María Elena Matthíasdóttir, fulltrúi Leikfélags Akureyrar

Ágúst Torfi Hauksson, fulltrúi Menningarfélagsins Hofs

Secret Link