Aðgengi og staðsetning
Aðgengi og staðsetning
Menningarhúsið Hof er staðsett í miðbæ Akureyrar og er eitt af helstu kennileitum bæjarins. Aðalinngangur Hofs snýr í norðvestur. Útsýni er úr húsinu í allar áttir. Einnig er hægt að ganga út og inn um húsið að suðaustanverðu. Við aðalinnganginn er rennihurð og sunnanmegin er vængjahurð.
Aðkoman sunnanmegin hússins er mjög heillandi fyrir siglingafólk á minni bátum sem leggja við bryggju tengda húsinu, ferðamenn og aðra gesti.
Hundar, rafskútur og hljól eru bönnuð í Hofi og ekki má koma á broddumm inn í húsið

Bílastæði
Bílastæði eru norðan og austan við bygginguna og hitalögn er í stéttum á helstu gönguleiðum. Almenn lýsing er að bílastæðum og göngulýsing við stíga.

Aðgengi fyrir fatlaða
Aðgengi fyrir fatlaða í Menningarhúsinu Hofi er til fyrirmyndar. Í aðalsal Hofs eru ákveðin sæti tileinkuð hreyfihömluðum. Við minnum gesti á að taka fram við miðasölu ef þörf er á þeim sætum, þar sem fjöldi þeirra er takmarkaður.
Sérstök bílastæði eru fyrir hreyfihamlaða við aðalinngang byggingarinnar. Inni í byggingunni er greið leið fyrir alla með lyftu sem tengir allar hæðir. Allar hurðir miðast við umferð hreyfihamlaðra og sérstök salerni fyrir hreyfihamlaða eru í húsinu.

Hljóðmöskvar fyrir heyrnardaufa
Fólk sem notar heyrnartæki hefur verulegt gagn af tónmöskvakerfi eða sambærilegu kerfi sem er notað til að draga úr aukahljóðum og bæta hlustun. Í Hofi er hægt að fá afnot af slíkum búnaði en hann virkar þannig að það eru sendar í loftinu sem gefa frá sér innrautt merki. Merkið sendist í móttakara, heyrnartól eða hljóðslaufu sem virkar með heyrnartækjum. Gestir sem óska eftir að fá afnot af búnaðinum eru beðnir um að gefa sig fram í miðasölu fyrir viðburð.
Nánar um Menningarhúsið HofSamkomuhúsið
Bílastæði
Bílastæði eru austan við Samkomuhúsið, bæði í Hafnarstræti nálægt húsinu og neðar á leikhúsflötinni. Bílastæði fyrir hreyfihamlaða er við suður hlið hússins. Almenn lýsing er að bílastæðum og göngulýsing við stíga.
Aðgengi fyrir fatlaða
Í Samkomuhúsinu er lyfta í anddyri hússins upp á aðra hæð þar sem sýningar fara fram. Í sal Samkomuhússins er hjólastóla stæði og sérstök hjólastólalyfta upp tröppurnar inn í salinn. Við minnum gesti á að taka fram við miðasölu ef þörf er á að nýta stæðið og lyftuna.
Sérstök bílastæði eru fyrir hreyfihamlaða við suðurhlið Samkomuhússins. Sérstök salerni fyrir hreyfihamlaða eru í húsinu.
Aðgengi og staðsetning | Samkomuhúsið
Samkomuhúsið á Akureyri við Hafnarstræti 57, er með glæsilegustu húsum landsins frá byrjun 20. aldar. Það nýtur sín ákaflega vel í bæjarmyndinni, á Barðsnefi, og er eitt helsta kennileiti Akureyrar, glæsilegt og háreist. Í húsinu hefur átt sér stað merkur kafli í leiklistarsögu Íslendinga en þar hefur verið leikið samfleytt í yfir heila öld.
Nánar um Samkomuhúsið