Starfsfólk Menningarfélags Akureyrar

Bak við hverja sýningu og viðburð stendur metnaðarfullt teymi.

Menningarfélag Akureyrar reiðir sig á fjölbreyttan hóp starfsfólks sem leggur sitt af mörkum við daglegan rekstur, skipulagningu viðburða og sköpun menningar í Hofi og Samkomuhúsinu.

Við erum stolt af samhentu og reynslumiklu starfsfólki sem sinnir störfum sínum af fagmennsku og alúð.

20
fastráðið starfsfólk
3
3 svið – eitt sameiginlegt markmið
400+
viðburðir með aðkomu starfsfólks
Sjá allar lykiltölur

Jafnlaunastefna Menningarfélags Akureyrar.

Það er stefna Menningarfélags Akureyrar að launaákvarðanir séu byggðar á málefnalegum forsendum og tryggt sé að sömu laun séu greidd fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Þættir sem liggja til grundvallar ákvörðunum eru kjarasamningar, lög og reglur, launaþróun, flokkun starfa og starfslýsingar. Laun taka mið af eðli verkefna, ábyrgð, menntun, þekkingu og starfsreynslu sem krafist er. Komi upp frábrigði, athugasemdir eða afbrigði er brugðist við þeim.

Sjá nánar

Mannauðsstefna

Hjá Menningarfélaginu er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi, það upplifi að það geti nýtt hæfileika sína og þróað þá áfram.
Með virkri starfsmannastefnu og með því að hlúa að ytra umhverfi starfsfólks leggur MAk áherslu á góðan starfsanda, að á milli starfsfólks ríki hreinskilni, trúnaður og uppbyggileg gagnrýni, ásamt jákvæðu viðmóti sem nær einnig til gesta og viðskiptavina.
MAk leitast við að hafa yfir að ráða hæfu og áhugasömu starfsfólki, sem er ábyrgt og sýnir frumkvæði og sjálfstæði í starfi.

Sjá nánar