Persónuverndarstefna
Menningarfélaginu er umhugað um persónuvernd og öryggi þeirra gagna og upplýsinga sem það meðhöndlar
Persónuverndarstefna Menningarfélags Akureyrar ses.
Sjá einnig:
VafrakökustefnaI. Almennt
Hlutverk Menningarfélags Akureyrar er að vera vettvangur fyrir menningarlíf og menningartengda ferðaþjónustu meðal annars með því að efla atvinnustarfsemi í leiklist og sinfónískri tónlist á Akureyri. Þetta hlutverk rækir Menningarfélag Akureyrar einkum með því að leigja út sali og rými til tónlistarviðburða, ráðstefnuhalds, funda og menningartengdrar starfsemi á samkeppnishæfu verði, með því að standa fyrir samstarfsverkefnum og eigin verkefnum. Menningarfélag Akureyrar er sjálfseignarstofnun sem samanstendur af; Leikfélagi Akureyrar, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Hof – viðburðahaldi sem eru með starfstöðvar í Menningarhúsinu Hofi og Samkomuhúsinu á Akureyri. Menningarfélag Akureyrar tekur á móti miklum fjölda gesta á ári hverju og er félaginu umhugað um meðferð persónuupplýsinga gesta sinna og hefur í því sambandi sett sér eftirfarandi persónuverndarstefnu. Stefna þessi tekur til þeirra persónuupplýsinga sem Menningarfélag Akureyrar safnar hvort sem þeim er safnað og þær varðveittar með rafrænum hætti eða öðrum hætti svo sem á pappír. Stefnan er ávallt aðgengileg á vef Menningarfélagsins, menningarfelag.is. Allt kapp hefur verið lagt á að útskýra vinnslu persónuupplýsinga á einfaldan og hnitmiðaðan hátt. Stefna þessi tekur mið af lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
II. Ábyrgð
Menningarfélag Akureyrar ber ábyrgð á allri meðferð persónuupplýsinga sem einstaklingar veita Menningarfélagi Akureyrar og skuldbindur sig að tryggja að meðferð þessara upplýsinga sé í samræmi við þau lög sem eru í gildi hverju sinni.
Menningarfélag Akureyrar vinnur eftirfarandi persónuupplýsingar einstaklinga við miðakaup þeirra á viðburði í Hofi og Samkomuhúsinu:
Fullt nafn
Að fengnu upplýstu samþykki einstaklinga vinnur Menningarfélagið eftirfarandi persónuupplýsingar við miðakaup á viðburði í Hofi og Samkomuhúsinu:
Kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer.
Þessar upplýsingar notar Menningarfélag Akureyrar til að:
Tryggja afhendingu miða til réttra eiganda.
Senda einstaklingum upplýsingar ef breytingar eiga sér stað á þeim viðburðum, sem miðar hafa verið keyptir á.
Senda einstaklingum miða í pósti sé þess óskað.
Senda einstaklingum upplýsingar um aðra viðburði sem eiga sér stað í Hofi og Samkomuhúsinu hafi einstaklingur óskað eftir því.
Sérsníða upplýsingar og senda einstaklingum, sem þess óska, upplýsingar um viðburði er snúa að áhugasviði þeirra.
Einstaklingar geta jafnframt skráð sig á póstlista Menningarfélags Akureyrar og fengið upplýsingar um ýmsa viðburði sem eiga sér stað í Hofi og Samkomuhúsinu. Viðskiptavinir geta hvenær óskað eftir afskráningu af póstlistanum.
- Heimsótt vefsíðu Menningarfélagsins og samþykkt notkun vefkaka.
- Sótt um starf hjá Menningarfélaginu.
- Samið við Menningarfélagið um að sinna ákveðnum verkefnum fyrir félagið.
Menningarfélag Akureyrar notar vefkökur til að greina hvaða viðburðir og fréttir vekja áhuga einstaklinga sem nota vefinn menningarfelag.is. Vefkökur eru litlar upplýsinga- og textaskrár. Þær eru vistaðar í vafra eða tæki einstaklinga þegar skoðaðar eru vefsíður. Vefkökur vista ekki persónuupplýsingar eins og nöfn, netföng, símanúmer eða kennitölur.
Einstaklingar geta eytt vefkökum sem eru vistaðar í tækjum þeirra.
Facebook Pixel er notaður til að deila upplýsingum með samstarfsaðilum sem geta notað þær til að auglýsa viðburði og til að fá upplýsingar um hvaðan einstaklingurinn kom inn á vefsíðuna. Þessar upplýsingar má nota til að birta einstaklingum auglýsingar sem Menningarfélag Akureyrar metur svo að einstaklingur hafi áhuga á að sjá og til að sérsníða þau skilaboð sem Menningarfélag Akureyrar birtir einstaklingum. Menningarfélag Akureyrar deilir ekki upplýsingum sem eru persónugreinanlegar með þessum aðilum eða vefsíðum þriðja aðila sem birta auglýsingar á vegum Menningarfélags Akureyrar.
a. Starfsfólk
Menningarfélag Akureyrar vinnur með persónuupplýsingar um starfsmenn sína til að geta greitt þeim laun fyrir störf sín. Tilteknar upplýsingar eru nauðsynlegar til að geta greitt laun, s.s:
Grunnupplýsingar um starfsfólk: Nafn, kennitala, heimilisfang, símanúmer og netfang.
Upplýsingar tengdar starfi: Stöðuheiti, starfslýsing, starsfaldur hjá fyrirtæki, launakjör, vinnutími og vaktafyrirkomulag.
Ráðningargögn og hæfniskröfur: Ferilskrá, umsagnir, upplýsingar um menntun, reynslu og hæfni sem tengist starfinu.
Launa- og skattaupplýsingar: Launatekjur, launaseðlar, skattafærslur, lífeyrissjóðsgreiðslur og aðrar greiðslur tengdar starfskjörum.
Fjarveruskráning: Skrá yfir veikindadaga, orlofsdaga og aðra leyfisfjarvistir.
Öryggis- og aðgengisupplýsingar: Aðgangsheimildir að byggingum eða tækjum og öryggisupplýsingar tengdar starfi.
Upplýsingar um árangur og frammistöðu: gögn úr starfsmannasamtölum, mat á frammistöðu, umbun eða áminningar ef við á.
Heilsufarsupplýsingar: Aðeins ef þær eru nauðsynlegar, eins og til dæmis upplýsingar um veikindaleyfi eða aðstæður sem hafa áhrif á vinnuframlag starfsfólks í samræmi við lög.
Umsækjendur um störf
b. Umsækjendur um störf
Menningarfélag Akureyrar vinnur með persónuupplýsingar þeirra sem sækja um starf hjá félaginu. Tilteknar upplýsingar eru nauðsynlegar við mat umsókna, s.s. tengiliðaupplýsingar, ferilskrá, kynningarbréf, upplýsingar um menntun, niðurstöður úr ráðningarviðtölum, umsagnir þriðja aðila og önnur samskipti við umsækjendur.
Menningarfélag Akureyrar leggur áherslu á að meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við lög um persónuvernd og að öryggi þeirra sé tryggt með viðeigandi hætti. Engum upplýsingum sem einstaklingar afhenda Menningarfélagi Akureyrar er miðlað til annarra en þeirra starfsmanna sem vinnu sinnar vegna þurfa að meðhöndla upplýsingarnar. Starfsfólk Menningarfélags Akureyrar skuldbinda sig til að viðhalda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem þeir meðhöndla um einstaklinga og gesti í Hofi og Samkomuhúsinu.
Menningarfélag Akureyrar heitir því að selja ekki, leigja eða deila persónuupplýsingum einstaklinga. Menningarfélag Akureyrar áskilur sér rétt til að miðla nauðsynlegum persónuupplýsingum einstaklinga til þjónustuveitanda eða verktaka á vegum þess í þeim tilgangi að veita einstaklingum þá þjónustu sem Menningarfélag Akureyrar hefur skuldbundið sig til eða vegna lögbundinna verkefna. Við miðlun slíkra persónuupplýsinga verður þess ávallt gætt að miðla ekki frekari upplýsingum til vinnsluaðila en þörf er á.
fni á heimasíðu Menningarfélags Akureyrar geymir tengla á síður aðila sem starfa innan Menningarhússins Hofs. Þessum vefsíðum stjórnar Menningarfélag Akureyrar ekki og mismunandi persónuverndarstefnur geta verið í gildi á þessum síðum. Menningarfélag Akureyrar hvetur þig til að skoða persónuverndarstefnur hvers aðila fyrir sig þar sem persónuverndarstefna Menningarfélags Akureyrar nær ekki til þessara þriðju aðila og vinnslu þeirra á persónuupplýsingum.
Helsti vinnsluaðili Menningarfélags Akureyrar er Tix miðasala sem er miðasölukerfi fyrir viðburði sem eru haldnir í Hofi og Samkomuhúsinu. Þegar einstaklingar kaupa miða í gegnum vefsíðu Menningarfélags Akureyrar verður þeim vísað inn á vef Tix miðasölu, tix.is, þar sem miðasalan fer fram. Allar upplýsingar sem einstaklingur gefur upp í miðasöluferlinu eru geymdar á sérsvæði Menningarfélags Akureyrar sem Tix tryggir með viðeigandi öryggisráðstöfunum.
Að öðru leyti en tekið er sérstaklega fram í stefnu þessari varðveitir félagið persónuupplýsingar eins lengi og þörf krefur miðað við tilgang vinnslunnar, nema annað sé heimilt eða skylt samkvæmt lögum.
Húsakynni Menningarfélags Akureyrar er vöktuð með eftirlitsmyndavélum. Vinnslan byggir á lögmætum hagsmunum félagsins í því skyni að tryggja öryggi og vernda eignir Menningarfélags Akureyrar. Ekki er unnið með upplýsingarnar né eru þær afhentar öðrum, nema með samþykki hins skráða og í samráði við persónuvernd. Ef um er að ræða slys eða meintan refsiverðan verknað er heimilt að afhenda lögreglu upplýsingarnar. Í þeim tilfellum er öllum öðrum eintökum eytt hjá Menningarfélagi Akureyrar.
Menningarfélag Akureyrar leggur áherslu á að virða rétt einstaklinga sem treysta félaginu fyrir persónuupplýsingum sínum og leggur í því sambandi áherslu á að auðvelda einstaklingum að framfylgja réttindum sínum gagnvart félaginu með því að beina eftirfarandi fyrirspurnum til Menningarfélags Akureyrar:
Réttur til aðgangs. Einstaklingar geta lagt fram beiðni um staðfestingu á því hvort Menningarfélag Akureyrar vinni persónuupplýsingar um þá og þá hver tilgangurinn er með vinnslunni, um hvað flokk persónuupplýsinga ræði, viðtakendur þeirra ef um slíkt er að ræða og varðveislutíma upplýsinganna.
Réttur til að flytja persónuupplýsingar. Einstaklingar eiga rétt á að fá þær persónuupplýsingar sem þeir hafa lagt Menningarfélagi Akureyrar til á algengu tölvulesanlegu sniði eða, óski einstaklingur eftir því, að slíkar upplýsingar verði afhentar öðrum aðila sem einstaklingur nefnir sem móttakanda.
Réttur til leiðréttingar og eyðingar. Menningarfélag Akureyrar leggur ríka áherslu á að upplýsingar sem félagið vinnur með séu réttar og áreiðanlegar og því óskar Menningarfélag Akureyrar eftir því að einstaklingar upplýsi Menningarfélag Akureyrar um allar þær breytingar sem verða á högum einstaklinga er varða vinnslu persónuupplýsinga. Þetta geta verið upplýsingar um netfang, síma og heimilisfang. Einstaklingur geta jafnframt óskað eftir að persónuupplýsingum viðkomandi einstaklings, sem Menningarfélagi Akureyrar ber ekki lagaleg skylda til að varðveita, sé eytt.
Réttur til að andmæla og eða takmarka vinnslu. Einstaklingar eiga rétt á að andmæla vinnslu persónuupplýsinga. Einstaklingur getur einnig farið fram á að vinnsla sinna persónuupplýsinga verði takmörkuð í tiltekinn tíma ef einstaklingur telur að upplýsingarnar séu ekki réttar.
Menningarfélag Akureyrar safnar ekki persónuupplýsingum um börn yngri en 13 ára án samþykkis forráðamanna.
Menningarfélag Akureyrar endurskoðar persónuverndarstefnu sína reglubundið og kann í því sambandi að gera breytingar á henni. Því hvetur Menningarfélag Akureyrar einstaklinga til að kynna sér persónuverndarstefnuna reglulega. Ef um viðmiklar efnisbreytingar er að ræða, sem geta haft áhrif á réttindi einstaklinga mun sú breyting verða kynnt viðskiptavinum Menningarfélags Akureyrar sérstaklega.
Tekið er við ábendingum og fyrirspurnum á netfanginu personuvernd@mak.is.
Uppfært 14. ágúst 2025