Upptakturinn

Upptakturinn

Tónsköpunarverðlaun fyrir ungmenni í 5.-10. bekk í grunnskólum á Norðurlandi eystra

Næst verður opið fyrir umsóknir í Upptaktinn í janúar 2028. Árið 2027 verður einungis boðið uppá tónlistarnámskeið fyrir áhugasöm börn og ungmenni sem kveikju fyrir að senda inn hugmynd að lagi fyrir Upptaktinn 2028. Nánari upplýsingar munu birtast hér.

Upptakturinn – Ungir semja, fullorðnir flytja


Verkefni sem hvetur ungmenni að semja sína eigin tónlist – frá hugmynd til verks sem flutt er á sviði 

Hvað er Upptakturinn?

Upptakturinn er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Hörpu.

Í Upptaktinum er áhersla lögð á að hvetja börn og ungmenni til að semja tónlist og styðja þau í fullvinnslu hugmyndar.

Ungmenni senda inn lag eða jafnvel hugmynd að lagi í gegnum umsóknareyðublað. Hugmyndin þarf ekki að vera fullunnin.

Ungmennin sem komast áfram vinna að útsetningum hugmynda sinna undir leiðsögn reyndra tónlistarmanna í skemmtilegum vinnusmiðjum.

Að þessu ferli loknu verða til ný tónverk sem flutt verða á tónleikum af atvinnuhljóðfæraleikurum og varðveitt með upptöku á rúv.is.

Höfundar tónverkanna sitja út í sal og njóta þess að horfa á atvinnuhljóðfæraleikara spila verk þeirra.

Markmið Upptaktsins

Sköpun – að stuðla að tónsköpun ungs fólks og hvetja börn og ungmenni til að semja eigin tónlist.


Skráning – að aðstoða börn og ungmenni við að fullvinna hugmyndir sínar í vinnusmiðju og varðveita þannig tónlistina.


Flutningur – að gefa börnum og ungmennum tækifæri á að upplifa eigin tónlist í flutningi fagfólks við kjöraðstæður á tónleikum í Menningarhúsinu Hofi. 

Svona tekurðu þátt:

Hér til hliðar má sjá skref fyrir skref hvernig hægt er að sækja um að taka þátt í Upptaktinum.

Aldur & staðsetning

Upptakturinn er fyrir nemendur í 5.–10. bekk í grunnskólum á Norðurlandi eystra.

Hugmynd að tónverki

Skila þarf hugmynd að verki, eða tónsmíð. Hugmyndin má vera frá 1 mínútu allt að 5 mínútum, annað hvort hugsað sem einleiksverk eða samleiksverk fyrir allt að 6 flytjendur.

Hvernig skal skila

Hugmyndinni skal skilað inn sem upptöku (mp3), texta eða í hefðbundinni eða grafískri nótnaskrif.

Skil á efni

Umsóknir sendist inn hér

Ferlið frá hugmynd til verðlauna

Frá vali dómnefndar til uppskeruhátíðar í Hofi

Dómnefnd

Dómnefnd velur þátttakendur úr hópi umsókna. Fagfólk í tónlist situr í dómnefnd. Allt að 10 verk verða valin til þátttöku. 

Einstaklingssmiðja


Þátttakandi hittir tónlistarmann sem mun vinna verkið áfram fyrir hljómsveit. Þar getur þátttakandinn sagt til um það hvernig hann sér verkið fyrir sér á sviði, hvað liggur að baki því, hvernig verkið varð til og fleira allt  til að  auka skilning útsetjara verksins þannig að það skili sér rétt í flutningi hljómsveitar á sviði. 

Vinnusmiðja með fagfólki

Valin verk verða fullunnin með fagfólki í tónlist í tónsmiðju.  Einstaklingsbundin vinnusmiðja fer fram í Hofi, sem og vinnusmiðja, með þeim umsækjendum sem valdir eru til þátttöku.

Viðtal hjá RÚV


RÚV tekur upp viðtal við hvern þátttakenda, það er nýtt á tónleikunum og er hluti af myndupptökunni sem varðveitt er á sarpi RÚV og sýnilegt á spilara ruv.is

Tónleikar

Tónleikar verða haldnir í kjölfar vinnusmiðjanna  og er því uppskeruhátíð þátttakenda. Tónleikarnir verða haldnir sunnudaginn 19. apríl kl 17 í Hamraborg í Hofi. Tónleikarnir eru hluti af Barnamenningarhátiðinni á Akureyri. Frítt er inn og allir hjartanlega velkomnir.  

Tónsköpunarverðlaunin


Allir þátttakendur sem eiga verk á tónleikunum hljóta tónsköpunarverðlaun Upptaktsins. 

Allar nánari upplýsingar hérna

Tónlistarstjóri: Greta Salóme tónlistarkona.
Útsetning verka með þátttakendum og leiðbeinandi í vinnusmiðjum: Greta Salóme tónlistarkona.

Verkefnastjóri Upptaktsins er Kristín Sóley Björnsdóttir sem veitir fúslega allar nánari upplýsingar.

Myndasafn