Menningarhúsið Hof
Um Menningarhúsið Hof
Menningarhúsið Hof var vígt á Akureyrarvöku dagana 27.-29. ágúst 20210.
Í Hofi er framúrskarandi aðstaða fyrir ýmsar gerðir viðburða. Fjölbreytt úrval rýma í húsinu gefur kost á að halda þar allt frá litlum stjórnarfundum og námskeiðum upp í fjölmennar ráðstefnur, stórtónleika og veislur tengdar fundum eða ráðstefnum. Starfsfólk Menningarhússins Hofs hefur mikla reynslu af skipulagningu fjölbreyttra viðburða og veitir faglega ráðgjöf auk þess að vera skipuleggjendum innan handar við undirbúning og framkvæmd.
Kista || Íslensk hönnun og gjafavara í hjarta Hofs
Kista er staðsett á jarðhæð Hofs við hliðina á miðasölunni. Í Kistu finnur þú spennandi íslenska hönnun, gjafavöru og skemmtilegar smáhlutir. Komdu við í Menningarhúsinu Hofi – þar finnur þú margskonar af allskonar!
MAJÓ í Menningarhúsinu Hofi
Majó || Aðlaðandi stemning, matarupplifun með asísku ívafi & sushi námskeið
Majó er nýr veitingaaðili í Hofi.
Veitingastaðurinn Majó hefur verið staðsettur í Laxdalshúsi um árabil og hefur sérhæft sig í sushigerð við mjög góðan orðstír. Staðurinn er auk þess þekktur fyrir aðlaðandi stemningu, sushi námskeið og girnilega Pop-up viðburði í Eyjafirði og víðar.
Majó sér um veitingasölu á viðburðum, fundum, veislum og ráðstefnum í Menningarhúsinu Hofi.
Til að byrja með mun Majó sjá um veitingasölu í kringum viðburði þennan fyrsta mánuð ársins, meðan þau eru að koma sér fyrir í húsinu.
Fyrirspurnir og bókanir á veitingum tengdum viðburðum í Hofi sendist á majo@majoiceland.is
Upplýsingamiðstöðin í Hofi
Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Hofi er opin frá apríl til október hvers árs. Opið verður alla daga frá kl. 9-14 en afgreiðslutíminn lengist í 8-16 yfir hásumarið.
Það eru Hafnasamlag Norðurlands, Menningarfélag Akureyrar, hönnunar- og gjafavöruverslunin Kista og Akureyrarbær sem hafa tekið höndum saman og standa að rekstri upplýsingamiðstöðvarinnar.
Tónlistarskólinn á Akureyri
Tónlistarskólinn á Akureyri býður upp á fjölþætt tónlistarnám. Hægt er að læra á neðangreind hljóðfæri og söng. Skólinn rekur listnámsbrautir í tónlist í samvinnu við framhaldsskóla á svæðinu. Hljómsveitarstarf skipar stóran sess í starfi skólans. Nauðsynlegt er að nema tónfræðigreinar með öðru námi. Nemendur á strengi og píanó geta lært samkvæmt Suzukiaðferð.
Sjá nánar