Um Menningarhúsið Hof

Bílastæði

Bílastæði eru norðan og austan við bygginguna og hitalögn er í stéttum á helstu gönguleiðum. Almenn lýsing er að bílastæðum og göngulýsing við stíga.

Aðgengi fyrir fatlaða

Aðgengi fyrir fatlaða í Menningarhúsinu Hofi er til fyrirmyndar. Í aðalsal Hofs eru ákveðin sæti tileinkuð hreyfihömluðum. Við minnum gesti á að taka fram við miðasölu ef þörf er á þeim sætum, þar sem fjöldi þeirra er takmarkaður.
Sérstök bílastæði eru fyrir hreyfihamlaða við aðalinngang byggingarinnar. Inni í byggingunni er greið leið fyrir alla með lyftu sem tengir allar hæðir. Allar hurðir miðast við umferð hreyfihamlaðra og sérstök salerni fyrir hreyfihamlaða eru í húsinu.

Hljóðmöskvar fyrir heyrnardaufa

Fólk sem notar heyrnartæki hefur verulegt gagn af tónmöskvakerfi eða sambærilegu kerfi sem er notað til að draga úr aukahljóðum og bæta hlustun. Í Hofi er hægt að fá afnot af slíkum búnaði en hann virkar þannig að það eru sendar í loftinu sem gefa frá sér innrautt merki. Merkið sendist í móttakara, heyrnartól eða hljóðslaufu sem virkar með heyrnartækjum. Gestir sem óska eftir að fá afnot af búnaðinum eru beðnir um að gefa sig fram í miðasölu fyrir viðburð.

Aðgengi og staðsetning

Menningarhúsið Hof er staðsett í miðbæ Akureyrar og er eitt af helstu kennileitum bæjarins. Aðalinngangur Hofs snýr í norðvestur. Útsýni er úr húsinu í allar áttir. Einnig er hægt að ganga út og inn um húsið að suðaustanverðu. Við aðalinnganginn er rennihurð og sunnanmegin er vængjahurð.

Aðkoman sunnanmegin hússins er mjög heillandi fyrir siglingafólk á minni bátum sem leggja við bryggju tengda húsinu, ferðamenn og aðra gesti. Einnig er hægt að ganga inn í húsið um forsalinn en opnun á þeim inngangi er háð þeim viðburðum sem þar fara fram.

Byggingarsagan

Saga Menningarhússins Hofs

Saga Menningarhússins Hofs á Akureyri nær aftur til ársins 1999, þegar ákvörðun um byggingu hússins var tekin, enda þörfin fyrir góða aðstöðu til tónleikahalds og aðra listviðburði óumdeild.

Alls bárust alls 338 tillögur um 241 nafn á húsinu.
Dómnefnd var skipuð Braga V. Bergmann, ráðgjafa, Margréti Jónsdóttur, leirlistakonu og Sverri Páli Erlendssyni, menntaskólakennara. Þau komust að einróma niðurstöðu um að húsið skyldi hljóta nafnið Hof.

Nafn hússins

Efnt var til samkeppni um nafn á byggingunni og var þáttakan afar góð.

Secret Link