Upplýsingamiðstöð ferðamanna

Upplýsingamiðstöðin í Hofi opin

Upplýsingamiðstöð ferðamanna var opnuð í Hofi mánudaginn 1. apríl. Opið verður alla daga frá kl. 9-14 en afgreiðslutíminn lengist í 8-16 yfir hásumarið.

Það eru Hafnasamlag Norðurlands, Menningarfélag Akureyrar, hönnunar- og gjafavöruverslunin Kista og Akureyrarbær sem hafa tekið höndum saman og standa að rekstri upplýsingamiðstöðvarinnar.