LEIKFÉLAG AKUREYRAR · 2026–2027

Rafrænar prufur fyrir leikara

Leikfélag Akureyrar kallar eftir umsóknum og upptökum frá leikurum vegna verkefna á leikárinu 2026–2027.

Við leitum að leikurum sem hafa lokið háskólaprófi í leiklist, eða búa yfir álíka menntun eða sambærilegri reynslu. Við leitum að fjölbreyttum hópi hæfileikafólks og hvetjum leikara af öllum kynjum og með ólíkan bakgrunn eða uppruna til að senda inn prufur.

Með umsókn skal fylgja

  • Stutt ferilskrá
  • Nýleg ljósmynd
  • Hlekkur á myndband með eintali og/eða söng (hámark 2 mínútur að lengd)

Umsóknarfrestur: Til og með 1. desember 2026.

Völdum umsækjendum verður í kjölfarið boðið í nánara samtal í mars 2027.

Umsóknir og gögn berist í gegnum formið hér fyrir neðan.

Allir reitir merktir * eru nauðsynlegir. Hafðu ferilskrá, ljósmynd og hlekk á myndband tilbúin áður en þú sendir umsóknina.

01 Upplýsingar um þig
02 Ferilskrá og ljósmynd

Stutt ferilskrá / bio á PDF-formi. Ein skrá, að hámarki 10 MB.

Nýleg ljósmynd á JPG-, PNG- eða WebP-formi. Ein skrá, að hámarki 10 MB og 16 megapixlar.

03 Prufumyndband

Settu inn hlekk á myndbandið, til dæmis á YouTube, Vimeo, Google Drive eða Dropbox. Hlekkurinn þarf að byrja á https://. Tryggðu að starfsfólk Leikfélags Akureyrar geti opnað myndbandið.

Umsókn og fylgigögn eru vistuð hjá Menningarfélagi Akureyrar vegna leikaraprufanna. Aðgangur er ætlaður þeim starfsmönnum sem vinna úr umsóknunum.

Skráning fer fram hér á síðunni.