Hamraborg skapar fullkomna umgjörð fyrir viðburði af ýmsu tagi, hvort sem um er að ræða ráðstefnur, tónleika, danssýningar eða annað.

Í salnum er 280 fermetra svið með hljómsveitargryfju og hægt er að aðlaga það að þörfum notenda hverju sinni. Hamraborg hentar sérstaklega vel fyrir rafmagnaða og órafmagnaða tónlist enda hljómburður salarins eins og best verður á kosið. Á veggjum eru hljóðskildir úr timbri og einnig eru hljóðgardínur til dempunar á ómtíma. Í salnum eru 21 flugrá, sviðstjöld og annar búnaður sem notendur hússins geta fengið afnot af.

Fyrir framan inngang Hamraborgar er rúmgóður og fallegur forsalur sem er tilvalinn fyrir móttökur fyrir og/eða eftir viðburði. Þar er einnig staðsettur bar sem alltaf er opinn á undan viðburðum og í hléi.

Búnaður fyrir tónleika og aðra viðburði
Innifalið í salarleigu fyrir tónleika

  • Grunntæknibúnaður
  • Hljóðbúnaður
  • 6 hljóðnemar
  • 10 sviðshátalarar
  • 2 hljóðblöndunarborð
  • Snúrur og statíf

Ljósabúnaður:

  • 6 Martin TW1
  • 7 Source4 110V
  • 4 ADB Warp
  • 11 Robe Spiider
  • 8 AYRTON EURUS-S
  • GrandMA 3 lite ljósaborð
  • MDG ATme mistvél

Baksviðsaðstaða

  • Græna herbergið
  • Hár og smink aðstaða
  • 6 búningsherbergi
  • Hljóðdrapperingar
  • Stillanlegur ómtími
  • Þráðlaust intercom
  • 3 pallar (1×2 m) undir trommusett

Annar búnaður og þjónusta í boði

  • Þráðlausir hljóðnemar
  • Fluguhljóðnemar + móttakarar
  • Hljóðnemar á hljóðfæri
  • Monitorar
  • Fjölrása hljóðmixer
  • Kórpallar
  • Sviðspallar
  • Flygill
  • Trommusett
  • Skjávarpi og tjald
  • Promter 42″ skjár + tölva
  • Hljóðmaður
  • Ljósamaður
  • Monitormaður
  • Sýningarstjóri
  • Framhússtarfsmenn

Búnaður fyrir fundi
Innifalið í salarleigu

  • Skjávarpi
  • Tjald
  • Tölva
  • Grunnlýsing: 6 Martin TW1, 6 Source4 110V,
  • 4 ADB Warp, 11 Robe Spiider, 8 AYRTON EURUS-S
  • Ræðupúlt með hljóðnema
  • Aðgangur að þráðlausu neti
  • Uppsetning
  • Frágangur

Annar búnaður og þjónusta í boði

  • Pallborðshljóðnemar
  • Þráðlausir hljóðnemar
  • Fluguhljóðnemar + móttakari
  • Skjár á rúllustandi
  • Auka tölva
  • Afnot af flygli
  • Töskugeymsla
  • Tæknimaður
  • Streymi/upptaka

Fundir og ráðstefnur
Hámarksnýting: 509 manns
Aðalsalur: 275 gestir.
Aðalsalur + svalir: 509 gestir (hámarksnýting)
Stærð: 700 m² - þar af 266 m² svið fm
þar af 266 m² svið fm

Verð

5 klst. - 312.530 kr. + vsk
10 klst. - 497.733 kr. + vsk

Athugið að ekki er hægt að nýta Hamraborg og svarta kassann samtímis.

Hafa samband

Allir salir

Hér að neðan sést yfirlit yfir öll þau rými sem hægt er að leigja í Hofi, hvort sem um er að ræða veislu, ráðstefnu, málþing, stjórnarfund, tónleika, danssýningu eða annan viðburð og verðskrá fyrir hvert fyrir sig.

Secret Link