Hamrar
Hamrar er með flötu gólfi, lausum stólum og lausu sviði, sem gerir það mögulegt að aðlaga salinn að þörfum hvers skipuleggjenda, hvort sem um er að ræða tónleika, ráðstefnu, veislu eða annað.
Salurinn er viðarklæddur í hólf og gólf með ljósum panel og við hönnun salarins var lögð sérstök áhersla á góðan hljómburð. Hamrar hentar einkar vel fyrir bæði rafmagnaða og órafmagnaða tónlist, ýmsa listgjörninga og einnig fyrir fundi, ráðstefnur og námskeið. Með borðum er einnig hægt að skapa einskonar kaffihúsastemmningu þar sem boðið er upp á veitingar á meðan viðburði stendur.
Salurinn er með þrjár stórar dyr sem opnast út á verönd og er salurinn tilvalinn fyrir fallegar veislur. Salinn er auðveldlega hægt að opna og sameina öðrum svæðum hússins og halda stærri veislur.
Búnaður fyrir tónleika og aðra viðburði
Innifalið í salarleigu
- Hljóðkerfi
- Föst tónleikalýsing
- 14 stk hreyfiljós (12 Clay paky Mini-B & 2 Ayrton Diablo TC)
- Ljósastýring
- Grunnhljóðbúnaður:
- Hljóðnemapakki fyrir hljómsveit
- 4 monitorar
- 1 hljóðblöndunarborð
- Snúrur og statív
- Standsetning á sal
- Þrif
Annar búnaður og þjónusta í boði
- Þráðlausir hljóðnemar
- Monitorar
- Kórpallar
- Svið
- Sviðspallar
- Flygill
- Trommusett
- Skjávarpi og sýningatjald
- Hljóðmaður
- Monitormaður
- Ljósamaður
- Drapperingakerfi
Búnaður fyrir fundi
Innifalið í salarleigu
- Skjávarpi
- Sýningatjald
- Tölva
- Ræðupúlt með hljóðnema
- Föst lýsing ( 12 Clay Paky Mini-B, 2 Ayrton Diablo- TC)
- Aðgangur að þráðlausu neti
- Uppröðun
- Frágangur
- Þrif
Annar búnaður og þjónusta í boði
- Sviðspallar
- Pallborðshljóðnemar
- Þráðlausir hljóðnemar
- Fluguhljóðnemar
- Skjáir á standi
- Töskugeymsla
- Afnot af flygli
- Streymi/upptaka
- Drapperingakerfi
Skólastofa: 140
Hringborð: 140
Verð
Allir salir
Hér að neðan sést yfirlit yfir öll þau rými sem hægt er að leigja í Hofi, hvort sem um er að ræða veislu, ráðstefnu, málþing, stjórnarfund, tónleika, danssýningu eða annan viðburð og verðskrá fyrir hvert fyrir sig.