Setberg Leiðbeiningar
Setberg – Leiðbeiningar
Í fundarherberginu Setbergi eru bæði skjár og myndavél sem hægt er að tengja við tölvu, spjaldtölvu, snjallsíma og annað.
Ef nota á myndavélina til fjarfunda mælum við með því að tengjast með HDMI og USB snúrum sem eru í tengibrunni í fundarborðinu. Nauðsynlegt er að tengja USB snúruna til að nota myndavélina. Breytistykki fyrir þessar snúrur eru ef þarf í skápnum við bakvegg Setbergs, ræðið annars við starfsfólk Hofs ef eitthvað vantar.
Gestum býðst að tengjast þráðlausa netinu Hof Gestir, lykilorðið er Akureyri.
Til að tengjast skjánum þráðlaust, farið eftir leiðbeiningum fyrir það tæki sem við á.

Windows
Ef ekki er búið að tengja tölvuna á þráðlausa netið Hof Gestir nú þegar þarf að byrja á því. Smellið á nettengingar táknið neðst hægra megin á skjá tölvunnar og veljið netið Hof Gestir. Lykilorðið er Akureyri.
Byrjið á að halda niðri Windows/Start takkanum á lyklaborði tölvunnar og ýtið á K. Þá opnast gluggi til hliðar þar sem hægt er að velja um mögulegar þráðlausar tengingar við skjái.
Veljið Setberg skáinn á listanum.
Sláið inn aðgangskóðann 1212.
Tenging ætti að vera tilbúin.

Android
Ef ekki er búið að tengja tækið við þráðlausa netið Hof Gestir, opnið Control Center með því að draga niður úr hægra horni. Veljið Internet, See All og netið Hof Gestir. Lykilorðið er Akureyri.
Opnið Control Center með því að draga niður úr hægra horni. Veljið Screen Cast.
Veljið Setberg skáinn á listanum.
Sláið inn aðgangskóðann 1212.
Tenging ætti að vera tilbúin.
