Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Saga hljómsveitarinnar
Um Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er nútímaleg og verkefnamiðuð hljómsveit. Sveitin var stofnuð árið 1993 og hefur vaxið mikið undanfarin ár, sem hluti af rekstri Menningarfélags Akureyrar. Fyrir utan að hafa í hávegum flutning á klassískri tónlist hefur hljómsveitin á síðustu árum sérhæft sig í upptökum á kvikmyndatónlist og stuðlað að frumflutningi á nýrri íslenskri sinfónískri tónlist.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands brýtur múra milli tónlistarstefna og leitast við að brúa bilið milli áheyrenda og flytjenda með samstarfi við listamenn úr öðrum geirum tónlistarlífsins.
SinfoniaNord – Sprotaverkefni Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
Tilgangur verkefnisins er að skapa hljóðfæraleikurum SN aukin atvinnutækifæri. Undir verkefnið falla upptökur á alþjóðlegri kvikmyndatónlist í Hofi og þjónustuverkefni þar sem hljómsveitin veitir sinfóníska þjónustu til þriðja aðila. Verkefnið hefur verið starfrækt síðan 2015 og hefur nú þegar verið hljóðrituð kvikmyndatónlist fyrir Netflix, BBC, Sony og History Channel svo eitthvað sé nefnt
MAJÓ í Menningarhúsinu Hofi
Majó || Aðlaðandi stemning, spennandi veitingar með asísku ívafi, sushi & sushi námskeið
Majó er nýr veitingaaðili í Hofi.
Veitingastaðurinn Majó hefur verið staðsettur í Laxdalshúsi um árabil og hefur sérhæft sig í sushigerð við mjög góðan orðstír. Staðurinn er auk þess þekktur fyrir aðlaðandi stemningu, sushi námskeið og girnilega Pop-up viðburði í Eyjafirði og víðar.
Majó sér um veitingasölu á viðburðum, fundum, veislum og ráðstefnum í Menningarhúsinu Hofi.
Til að byrja með mun Majó sjá um veitingasölu í kringum viðburði þennan fyrsta mánuð ársins, meðan þau eru að koma sér fyrir í húsinu.
Fyrirspurnir og bókanir á veitingum tengdum viðburðum í Hofi sendist á majo@majoiceland.is
Formleg opnun veitingastaðarins verður auglýst von bráðar.