Um Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Um Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er nútímaleg og verkefnamiðuð hljómsveit.
Sveitin var stofnuð árið 1993 og hefur vaxið mikið undanfarin ár, sem hluti af rekstri Menningarfélags Akureyrar. Fyrir utan að hafa í hávegum flutning á klassískri tónlist hefur hljómsveitin á síðustu árum sérhæft sig í upptökum á kvikmyndatónlist og stuðlað að frumflutningi á nýrri íslenskri sinfónískri tónlist. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands brýtur múra milli tónlistarstefna og leitast við að brúa bilið milli áheyrenda og flytjenda með samstarfi við listamenn úr öðrum geirum tónlistarlífsins.
Frábær árangur hljómsveitarinnar ber vitnisburð um að starfsemi hennar hefur unnið sér sess á Akureyri hjá bæði áheyrendum og listamönnum sem öflug uppspretta afþreyingar, frumsköpunar og atvinnutækifæra.
Saga hljómsveitarinnar
Frá kammerhljómsveit til sinfóníu – ferðalag norðlenskrar tónlistar
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands var stofnuð haustið 1993, en á undan henni starfaði Kammerhljómsveit Akureyrar með stuðningi sjálfboðaliða og tónlistarkennara. Fyrstu tónleikarnir voru haldnir 24. október 1993.
Upphafið: Kammerhljómsveitin
Kammerhljómsveit Akureyrar var stofnuð árið 1987 af hljóðfæraleikurum sem störfuðu við Tónlistarskólann á Akureyri. Árið 1988 var stofnað Félag áhugamanna um rekstur sveitarinnar til að styðja við tónleikahaldið. Sveitin hélt fjölmarga tónleika, oft með liðsauka frá höfuðborgarsvæðinu – þar á meðal brottfluttum Akureyringum. Roar Kvam var sá sem oftast stýrði sveitinni á þeim tíma.
Nafn og stuðningur
Þegar sveitin hafði skipað sér sess í tónlistarlífi Akureyrar hófst vinna við að efla hana með styrkjum frá ríkinu. Að tillögu menningarfulltrúa bæjarins, Ingólfs Ármannssonar, var nafni sveitarinnar breytt í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands haustið 1993 til að auðvelda fjármögnun. Ríkið hóf að styðja við reksturinn, fyrst beint og síðar í gegnum samning við Akureyrarbæ.
Samtök og sameining
Á aðalfundi Félags áhugamanna þann 5. október 1993 var samþykkt að sameinast Tónlistarfélagi Akureyrar. Með þessu tóku félögin höndum saman um formlega stofnun Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Markmiðið var að skapa sterkari grunn fyrir hljómsveitina og efla hennar hlutverk í menningarlífi norðursins.
Kynntu þér ítarlega sögu Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands!
snsaga.urmull.com er vefur sem geymir upplýsingar um Sinfóníuhljómsveit Norðurlands frá stofnun hennar haustið 1993 til vors 2009.
Á þessum tíma hefur hljómsveitin haldið yfir 100 tónleika auk fjölda skólatónleika og fest sig rækilega í sessi sem menningarstofnun á Norðurlandi. Vefurinn byggir á gagnagrunni með upplýsingum um hljómsveitina sem hægt er að kalla fram á marga mismunandi vegu. Einnig er hér að finna ýmislegt ítarefni um hljómsveitina; fundagerðir, ársskýrslur, fjölmiðlaumfjöllun o.fl. Vefurinn er lokaverkefni Mögnu Guðmundsdóttur í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands.
Kjarninn í hljómsveitinni
Hljóðfæraleikarar SN
Hér má finna upplýsingar um hljóðfæraleikara Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
Sjá nánar