Starfsfólk
Adolf Smári Unnarsson
Adolf Smári lauk leikstjórnarnámi frá DAMU, sviðslistaakademíunni í Prag, árið 2023. Hann hefur leikstýrt bæði sjálfstæðum leikverkum og óperum, meðal annars Brím, Carmen, Kannibalen og Ekkert er sorglegra en manneskjan, en fyrir þá sýningu hlaut hann tilnefningu til Grímunnar sem leikstjóri ársins. Á síðustu árum hefur Adolf Smári haslað sér völl sem leikskáld og vakið athygli fyrir leikrit sín Undir (Tjarnarbíó) og Nokkur augnablik um nótt (Þjóðleikhúsið), en árið 2024 frumsýndi RÚV sjónvarpsmynd byggða á síðarnefndu verki.
