Starfsfólk

Leikhússtjóri

Bergur Þór Ingólfsson

Bergur Þór útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1995. Hann hefur verið fastráðinn við Borgarleikhúsið frá árinu 2000 og hefur leikið þar fjölmörg hlutverk. Hann hefur getið sér gott orð sem leikstjóri en á meðal stórsýninga sem hann hefur leikstýrt eru Mary Poppins, Deleríum búbónis, Billy Elliot og Matthildur. Hann hefur einnig starfað í kvikmyndum og sjónvarpi og hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar fyrir störf sín.

Bergur hefur verið leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar frá árinu 2024. Hann hefur með því leikstýrt leiksýningum hjá félaginu og má þar nefna Litlu Hryllingsbúðina, Jóla Lólu og Birtíng sem verður frumsýnt 26. febrúar 2026.

Sýningar

  • Skilaboðaskjóðan
  • 120 ára afmæli Samkomuhússins
  • Litla Hryllingsbúðin
  • Birtíngur
  • Jóla-Lóla
Secret Link