Starfsfólk
Leikari
Diana Sus
Diana er tónlistarkona og leikkona með mikla ástríðu fyrir kvikmyndagerð. Hún útskrifaðist úr skapandi tónlistardeild Tónlistarskólans á Akureyri. Hún hefur tekið þátt í “Kabarett” sýningu í Þjóðleikhúsinu í Lettlandi og hefur verið virk í kabarettsenunni á Íslandi frá árinu 2022. Hún hefur leikið í, meðframleitt og leikstýrt nokkrum stuttmyndum og tónlistarmyndböndum. Nýjasta verkefni hennar var teiknimyndin „Ivan vampíra“.