Starfsfólk
Edda Björgvinsdóttir
Edda Björgvinsdóttir útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands 1978 og hefur óslitið unnið að listgrein sinni allt til þessa dags. Með leiklistinni hefur Edda verið í stöðugri endurmenntun og lauk t.d. MA-námi í menningarstjórnum frá Háskólanum á Bifröst 2013, lauk diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði frá Háskóla Íslands 2015, lauk diplómanámi á meistarastigi í Sálgæslu í H.Í. 2024 og lauk einnig jógakennaranámi frá Jógasetrinu 2024. Auk þess hefur Edda unnið með mörgum stórfyrirtækjum og stéttarfélögum á Íslandi og haldið fyrirlestra og námskeið “Húmor í stjórnun” og “Áföll, bjargráð, húmor og hamingja” Edda hefur starfað sem leikkona í fjölmörgum sýningum hjá Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Leikfélagi Akureyrar og ótal mörgum sjálfstætt starfandi leikhúsum og auk þess leikið í fjölda kvikmynda og sjónvarpsmynda, skrifað leikið efni af ýmsu tagi og fengist við skrif og leikstjórn.
