Starfsfólk

Leikari

Fanney Valsdóttir

Fanney starfar sem verkefnastjóri skrifstofu Tónlistarskólans á Akureyri. Hún er með BA gráðu í Miðlun og almannatengslum og MCM gráðu í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Hún hefur verið viðloða leikhús í yfir 30 ár og leikið í yfir 20 sýningum, flestum hjá Leikfélagi Hörgdæla þar sem hún er formaður í dag. Fanney hefur sótt Leiklistarskóla Bandalags Íslenskra Leikfélaga til fjölda ára þar sem hin ýmsu form leiklistar og leikstjórnar hafa verið viðfangsefni námskeiða. Fanney hefur setið í stjórn Umskiptinga frá 2023 sem gjaldkeri félagsins og tekið að sér verkefnastjórn og leikstjórn fyrri Töfrabóka. Í vetur mun Fanney leika í Fóu og Fóu Feykirófu, Sögunni af Gýpu og Jólaglöggi á vegum Umskiptinga.

Sýningar

Secret Link