Starfsfólk
Fjölnir Gíslason
Fjölnir útskrifaðist frá Alþjóðlega leiklistarskólanum í Kaupmannahöfn (CISPA) árið 2019 og hefur síðasta áratuginn starfað við kvikmyndir, sjónvarp og leikhús, bæði innan sjálfstæðu leikhússenunnar og við leikhús hérlendis og í Kaupmannahöfn. Fjölnir hefur starfað bæði sem leikari og hönnuður. Helstu verkefni hans eru sýningarnar Hetja, Kannibalen, Undir og Jónsmessunæturdraumur. Hann sá um ljósa og myndbandshönnun í verkunum Hetja (Tjarnarbíó), Rómeó og Júlía (ÍD), X (Leikfélag Reykjavíkur), Jónsmessunæturdraumur (Tjarnarbíó) og Carmen (Tjarnarbíó).
