Starfsfólk
Greta Salóme Stefánsdóttir
Greta Salóme Stefánsdóttir (f. 11. nóvember 1986) er íslensk söngkona, tónskáld, textahöfundur og fiðluleikari. Hún er konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og hefur tekið þátt í fjöldamörgum viðburðum á vegum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.
Árið 2012 tók hún þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva með lagið „Never Forget“ með Jónsa. Það endaði í 20. sæti með 46 stig. Árið 2016 tók hún aftur þátt með „Hear Them Calling“ .