Starfsfólk

Hár og förðun

Harpa Birgisdóttir

Harpa Birgisdóttir, hársnyrtimeistari og förðunarfræðingur, starfar sem hársnyrtikennari og brautarstjóri hársnyrtideildar við Verkmenntaskólann á Akureyri. Fyrsta leiksýningin sem Harpa vann að fyrir Leikfélagið var Oliver Twist og síðan þá hefur Harpa komið að nánast öllum sýningum leikfélagsins með einum eða öðrum hætti. Hún hefur séð um hár- greiðslu, förðun, sýningarstjórn og sviðsmennsku, og síðustu þrettán árin hefur hún hannað gervi fyrir sýningar félagsins. Má þar nefna Rocky Horror, Gulleyjuna, Svörtu kómedíuna, Fúlar á móti, Gallsteina afa Gissa, Vorið vaknar, Kabarett, Benedikt búálf, Skugga Svein, Litla skrímslið og stóra skrímslið, Jóla Lólu, Litlu Hryllingsbúðina og Elskan, er ég heima?.

Sýningar

  • Birtíngur
  • Jóla-Lóla
Secret Link