Starfsfólk
Hjalti Rúnar Jónsson
Hjalti Rúnar útskrifaðist sem leikari frá Listaháskóla Íslands vorið 2016. Fyrir það hafði hann þó leikið töluvert frá unga aldri í verkefnum líkt og Pétri Pan hjá Borgarleikhúsinu, kvikmyndinni Ikingut þar sem hann hlaut tilnefningu til Edduverðlauna fyrir leik í aðalhlutverki, auk fjölda verka hjá Leikfélagi Akureyrar t.a.m. Óvitar, Lilja og Rocky Horror.
Eftir nám hefur Hjalti verið á f lakki og tekið þátt í mörgum uppfærslum sjálfstæðu leikhópanna. Þar má helst nefna Galdragáttina, sem hann lék í hjá Umskiptingum, en hann hlaut tilnefningu til Grímuverðlauna fyrir hlutverk sín þar. Hjalti hefur líka skrifað verk og sett upp í samvinnu við aðra en það eru verkin Þingeyingur!, Jóla Lóla hjá L A og nú síðast farsinn Ber er Hver sem var sýndur við góðan orðstír hjá leikfélaginu Afturámóti, sumarið 2025.
Fyrir utan nokkur ár þar sem Hjalti var á samningi við Þjóðleikhúsið hefur hann oftast fundið fjalirnar hjá L A í Samkomuhúsinu enda finnst honum hvergi betra að stíga á svið. Elskan, er ég heima? var 10. sýningin sem hann fékkst við þar en að auki má nefna Kabarett, Benedikt Búálf, Lítla Skrímslið og Stóra Skrímslið og Jóla Lólu.





