Starfsfólk

Leikari

Hólmfríður Hafliðadóttir

Hólmfríður Haf liðadóttir útskrifaðist sem leikkona vorið 2024 úr Listaháskóla Íslands. Eftir útskrift hefur hún tekið þátt í níu uppfærslum í sjálfstæðu senunni, en þar má nefna Skeljar eftir Magnús Thorlacius sem var sýnt í Ásmundarsal vorið 2025 og var tilnefnt til Grímunnar sem leikrit ársins, Tvíhleypuna í Tjarnarbíó þar sem verkin Systir mín Matthildur eftir Gígju Hilmarsdóttur og Þöglar byltingar eftir Magnús Thorlacius voru sýnd og lék Hólmfríður í báðum verkum.

Hjá leikfélagi Akureyrar lék Hólmfríður aðalhlutverk í leiksýningunni Elskan, er ég heima? haustið 2025. Hún tók einnig við hlutverki Vettlings í vinsælu jólabarnasýningunni Jóla Lólu af Kristinni Óla Haraldssyni. Árið 2026 mun Hólmfríður einnig fara með hlutverk í rokk-óperettunni Birtíngur, sýning sem frumsýnd verður í febrúar 2026.

Nánar um feril

Hún hefur leikið bæði sumrin sem sumarleikhús Afturámóti hefur verið starfrækt, núna síðast í Ber er hver, farsa eftir Kristinn Óla S. Haraldsson, Hjalta Rúnar Jónsson og Vilhjálm B. Bragason í leikstjórn Körlu Kristjánsdóttur. Einleikur hennar og Magnúsar Thorlaciusar Flokkstjórinn, ferðaðist um landið þrjú sumur og hlaut styrki meðal annars úr Menningarsjóði Kópavogs, Seltjarnarnesbæ, Grundarfirði og Vesturbyggð, sýningin var einnig sýnd á RVK Fringe 2023.

Hún hefur verið í sýningarhópi Improv Íslands frá því í janúar 2022 og hefur kennt grunnnámskeið í spuna. Hún var kynnir Barnamenningarhátíðar í Hörpu 2025 og 2023 og í Skrekk 2021. Hún talsetti nýverið nýtt íslenskt barnaefni um íslensku málhljóðin: Lubbi finnur málbein.

Sýningar

  • Fasteignamartröðin
  • Skilaboðaskjóðan
  • 120 ára afmæli Samkomuhússins
  • Elskan er ég heima?
  • Birtíngur
  • Jóla-Lóla
Secret Link