Starfsfólk

Jóhann Axel

Jóhann Axel Ingólfsson útskrifaðist sem leikari frá Stella Adler Studio of Acting í New York árið 2016. Hann hóf leiklistarferil sinn ungur sem Birkir Borkason í Ronju Ræningjadóttur sem sýnt var í Freyvangsleikhúsinu árið 2004. Árið eftir lék hann Hrapp í uppsetningu Leikfélags Akureyar á Óliver Twist. Jóhann lék Þorfinn Karlsefni í söngleiknum Vínlandi sem valin var athyglisverðasta áhugasýning ársins árið 2008 og var sýnd í þjóðleikhúsinu sama ár. Jóhann tók einnig þátt í uppfærslu Leikfélags Akureyrar á söngleiknum Rocky Horror árið 2010-2011 og uppfærslu Freyangsleikhúsins á sýningunni Himnaríki sama ár. Sumarið 2014 setti leikhópurinn Norðurbandalagið upp sýninguna Ræflavík (Punk Rock) sem sýnt var bæði í Rýminu Akureyri og Tjarnabíó í Reykjavík, Jóhann fór með hlutverk Baldurs í verkinu.
Á meðan hann lærði í New York fór hann með hlutverk Paris í The Crucible, Lopákin í The Cherry Orchard og Clown í Winters Tale svo eitthvað sé nefnt.
Jóhann hefur mikið verið í tónlist meðfram leiklistinni og var hann m.a. Konsertmeistari Menntaskólanns á Akureyri 3 vetur. Jóhann hefur gengt hlutverki hljómsveitarstjóra í fjölda leik- dans- og tónleikauppfærslna, ásamt því að semja tónlistina í verkinu „Dagatalsdömurnar“ fyrir Freyvangsleikhúsið árið 2013.

Sýningar

  • 120 ára afmæli Samkomuhússins
Secret Link