Starfsfólk

Jóhannes Damian R. Patreksson

Jóhannes útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands af tónsmíðabraut nýmiðla árið 2023. Bakgrunnur hans er í hip-hop tónlist en hann hefur undanfarið einbeitt sér í auknum mæli að leikhús- og sjónvarpstónlist. Í Þjóðleikhúsinu var hann tónlistarstjóri og meðhöfundur tónlistar í söngleiknum Ormstungu og í Orra óstöðvandi, sem og í Jóla-Lólu hjá Leikfélagi Akureyrar. Hann samdi einnig tónlist fyrir þættina Krautz in Seltjarnarnes á RÚV.
Jóhannes er einnig þekktur undir listamannsnafninu JóiPé, og er annar helmingur tvíeykisins JóiPé x Króli. JóiPé og Króli hafa gefið út fimm plötur, hlotið Hlustendaverðlaunin sjö sinnum og Íslensku tónlistarverðlaunin fjórum sinnum.

Sýningar

  • Fasteignamartröðin
Secret Link