Starfsfólk
Jökull Smári Jakobsson
Jökull útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands árið 2022. Útskriftarverkefnið hans, Hamlet, var einmitt frumsýnt hér í Samkomuhúsinu. Jökull hefur komið víða við í leikhúsi og á skjánum bæði sem leikari, leikstjóri og höfundur. Meðal þeirra verka sem Jökull hefur tekið þátt í eru Eyja (2022), Hvíta tígrisdýrið (2023), Hollvættir á heiði (2023), Kannibalen (2024) og Innblástur (2026). Hollvættir á heiði var valin Barnasýning ársins á Grímunni 2024 og var Innblástur tilnefnd sem Barnasýning ársins á Grímunni 2026. Þá hlaut Jökull einnig tilnefningu fyrir sviðs- og danshreyfingar.


