Starfsfólk
Júlía Gunnarsdóttir
Júlía nam leikhúsfræði við Freie háskólann í Berlín og sálfræði við Háskóla Íslands, en í haust hefur hún meistaranám í dramatúrgíu við Goethe háskólann í Frankfurt. Á síðustu árum hefur Júlía starfað sem dramatúrg bæði á Íslandi og í Þýskalandi, meðal annars í Volksbühne (The Things We Don‘t Talk About), Maxim Gorki leikhúsinu (Zukunftsmusik) og Tjarnarbíó (Brím, Undir, Kannibalen). Árið 2025 frumsýndi hún sitt fyrsta leikrit, Skot, sem vann áhorfendaverðlaun Reykjavík Fringe hátíðarinnar.
