Starfsfólk
Kristinn Óli Haraldsson
Kristinn Óli S. Haraldsson hefur getið sér orðstír sem tónlistarmaður undir nafninu Króli. Hann steig fram á sjónarsviðið árið 2017 með félaga sínum JóaPé þegar lagið þeirra B.O.B.A sló í gegn. Kristinn Óli hefur komið víða við í list sinni. Hann tók þátt í uppsetningu Þjóðleikhússins á sýningunum Óvitar og Fjalla-Eyvindur og Halla, lék í söngleiknum We Will Rock You í Háskólabíó og í kvikmyndinni Agnes Joy. Kristinn Óli hefur gefið út fimm plötur en platan Afsakið hlé var mest selda plata ársins 2018. Hann hefur auk þess fimm sinnum hlotið Hlustendaverðlaunin og þrisvar sinnum fengið Íslensku tónlistarverðlaunin. Að auki var Kristinn Óli Ræðumaður Íslands 2018 og hefur unnið verðlaun Barnamenningarhátíðar þrisvar sinnum. Kristinn lék Tóta tannálf í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á Benedikt Búálfi og sló í gegn í hlutverki Baldurs í Litlu Hryllingsbúðinni sem og sem Vettlingur í vinsælu barnasýningununi Jóla Lólu.

