Starfsfólk
Margrét Sverrisdóttir
Margrét útskrifaðist með BA í leiklist frá Arts Ed London 2003. Frá útskrift hefur hún skrifað, leikið og leikstýrt bæði í sjónvarpi og leikhúsi. Margrét er Umskiptingur og lék m.a í barnaleiksýningunni Galdragáttin og þjóðsagan sem gleymdist sem fékk tilnefningu til Grímunnar sama ár. Verk sem hún hefur leikið í eru m.a. Litla skrímslið og stóra skrímslið, Líf, Gallsteinar afa Gissa, Halla, Þöggun og Bólu-Hjálmar sem fékk Grímuverðlaunin 2009. Hún var umsjónarkona Stundarinnar okkar hjá Rúv í tvö ár og skrifaði og lék í barnaþáttunum Himinlifandi í samstarfi við Biskupsstofu og N4. Í vetur lék Margrét í Fóu og Fóu Feykirófu, Lífi, Sögunni af dátanum og nú Jólaglöggi.