Starfsfólk
Ólafur Ásgeirsson
Ólafur Ásgeirsson útskrifaðist af leikarabraut Sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands árið 2015 og fluttist í kjölfarið til New York þar sem hann lærði Michael Chekhov leiklistartækni í The Michael Chekhov Acting Studio og spunatækni við UCB spunaskólann. Ólafur hefur leikið í kvikmyndunum Órói (2010) og Taka 5 (2019), auk þess sem hann hefur leikið í fjölda þáttasería, stuttmynda og auglýsinga.
Ólafur er einn stofnenda Leikfélagsins PóliS sem gerir leikhús á pólsku fyrir pólska Leikfélagið PóliS vann til Grímuverðlauna sem Sproti ársins fyrir sýninguna Co za poroniony pomysł (2021) sem sýnd var í Tjarnarbíói, en Ólafur lærði pólsku fyrir þá sýningu og var einnig tilnefndur til Grímunnar sem leikari ársins í aðalhlutverki fyrir leik sinn. Ólafur lék þá einnig í The Last Kvöldmáltíð (2021) í Tjarnarbíó sem tilnefnd var til fernra Grímuverðlauna.
Ólafur skrifaði handrit að leikritinu og fór með hlutverk í Tu jest za drogo sem fór á fjalirnar í Borgarleikhúsinu leikárið 2021/22. Ólafur skrifaði Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar (2023) með Sveini Ólafi Gunnarssyni ásamt því að leika í sýningunni. Ólafur fékk Grímutilnefningu fyrir leik í aukahlutverki og leikrit ársins 2023. Ólafur var í höfundahóp Áramótaskaupsins 2024 ásamt því að leika í þættinum. Ólafur er starfandi leiklistarkennari á öllum skólastigum og hefur sýnt vikulegar spunasýningar í Þjóðleikhúskjallaranum með Improv Ísland frá árinu 2016.
