Starfsfólk
Sindri Swan
Sindri útskrifaðist sem leikari og leikstjóri frá KADA í London árið 2014. Hann hefur komið fram bæði á kvikmyndasettum og leiksviðum í Bretlandi en hefur í seinni tíð beint athygli sinni að leikstjórn og myndatöku. Yfir árin hefur hann leikstýrt ýmsum stuttmyndum sem og leikstýrt myndbandsefni fyrir fréttaefni fyrir kvikmyndaheiminn. Síðustu leikstjórnarverkefni eru Lísa Í Undralandi fyrir VMA og frumsýning á verkinu SMÁN eftir Siggu Láru í Freyvangsleikhúsinu. Í leiklistinni hefur Sindri síðastliðin misseri verið með hlutverk í King and Conqueror í leikstjórn Baltasars Kormáks, tekið þátt í auglýsingu fyrir Sláturfélag Suðurlands og ýmis stuttverk.