Starfsfólk
Urður Bergsdóttir
Urður Bergsdóttir útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands árið 2021. Urður vann Músíktilraunir árið 2016 með hljómsveitinni Hórmónar þar sem hún söng og spilaði á rafmagnsbassa. Nú er hún gítarleikari dans-performancepönk-hljómsveitarinnar The Boob Sweat Gang, sem hefur komið fram á hátíðum eins og Reykjavík Dance Festival, Norðan Paunk og núna síðast á Upprásinni í Hörpu.
Árið 2024 lék hún í sýningunni And Björk of Course í leikstjórn Grétu Kristínar Ómarsdóttur, sem sýnd var hjá Leikfélagi Akureyrar og í Borgarleikhúsinu. Hún hefur meðal annars talað inn á teiknimyndirnar How to Train Your Dragon, Sing 2, Hvolpasveitin bíómyndin, Wreck-it Ralph og Narnía. Urður hefur leikið með Leikfélagi Akureyrar í söngleiknum Litlu Hryllingsbúðinni, sjálfa Jóla Lólu í samnefndri jólaleiksýningu, í leiksýningunni And Björk of course sem og í sýningunni Elskan, er ég heima? Urður endurtekur leikinn sem Jóla Lóla á aðventunni í ár og verður svo í söngleiknum Birtíngi eftir áramót.







