Starfsfólk
Vigdís Halla Birgisdóttir
Vigdís Halla útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands árið2022. Síðan þá hefur hún tekið þátt í fjölbreyttum sýningum innan leikhússenunnar. Helst má nefna Tóma hamingju og Hvíta Tígrisdýrið sem sýndar voru í Borgarleikhúsinu.
Þá tók hún þátt í Afturámóti árið 2024 í sýningunni Undir og hefur líka leikið í Útvarpsleikhúsinu. Einnig fór hún með hlutverk í barnasýningunni Hollvættir á heiði sem sýnd var á Egilsstöðum. Sú sýning hlaut Grímuverðlaunin 2024 sem barnaleikrit ársins og Vigdís var tilnefnd fyrir hlutverk sitt sem leikkona ársins í aukahlutverki á Grímu-verðlaunahátíðinni það ár. Elskan, er ég heima? sem sýnt var haustið 2025 var hennar fyrsta verkefni fyrir Leikfélag Akureyrar eftir útskrift.



