Vafrakökustefna
Stefna Menningarfélags Akureyrar um notkun á vafrakökum
Á vefsíðu Menningarfélags Akureyrar ses. er að finna nokkrar gerðir af vafrakökum sem hjálpa okkur að bæta þjónustu og upplifun þeirra sem heimsækja vef félagsins. Vafrakökurnar sem við notum gera það að verkum að vefsíður okkar virki og hjálpa okkur að skilja hvaða upplýsingar og auglýsingar nýtast notendum best.
Stefnu þessari er ætlað að upplýsa notendur vefsíðna sem tilheyra Menningarfélaginu um hvaða vafrakökur við notum og í hvaða tilgang
1. Hvað eru vafrafkökur?
Vafrakökur, dílar (e. pixels) og aðrar sambærilegar viðbætur eru litlar textaskrár sem eru vistaðar á tölvum eða öðrum snjalltækjum notanda þegar vefsíða er heimsótt. Vafrakökurnar er hægt að nýta í mismunandi tilgangi, t.d. til þess að tryggja eðlilega virkni vefsíðu, muna stillingar notanda og birta vörur og þjónustu sem viðkomandi notandi er líklegur til að hafa áhuga á.
2. Hvaða vafrakökur notum við?
Menningarfélag Akureyrar ber ábyrgð á allri meðferð persónuupplýsinga sem einstaklingar veita Menningarfélagi Akureyrar og skuldbindur sig að tryggja að meðferð þessara upplýsinga sé í samræmi við þau lög sem eru í gildi hverju sinni.
Nauðsynlegar kökur (e. necessary cookies)
Nauðsynlegar kökur eru notaðar til þess að vefsíður okkar hafi eðlilega virkni. Slíkar vafrakökur eru ekki notaðar til að skrá niður persónuupplýsingar eða aðgerðir notenda á öðrum vefsíðum. Vefsíður okkar munu ekki virka rétt án þeirra og því er ekki hægt að hafna þeim.
Stillingarkökur (e. preference cookies)
Stillingarkökur gera vefsíðum okkar kleift að muna upplýsingar eða aðgerðir notenda svo hægt sé að stjórna því hvernig vefsíða lítur út eða hegðar sér fyrir hvern notanda. Slíkar vafrakökur skrá til dæmis niður gjaldmiðil, landsvæði, tungumál eða litaþema sem notandi velur. Notkun þeirra er háð samþykki notenda.
Tölfræðikökur (e. analytical cookies)
Tölfræðikökur eru nauðsynlegar til að safna tölfræðiupplýsingum um hvernig vefsíður okkar eru notaðar, greina vandamál sem kunna að koma upp og safna upplýsingum um hvernig hægt er að þróa vefsíður okkar í samræmi við virkni notenda. Upplýsingum sem slíkar vafrakökur safna eru í langflestum tilvikum órekjanlegar tölfræðiupplýsingar en upplýsingarnar kunna þó einnig að vera rekjanlegar til einstaklinga. Notkun þeirra er háð samþykki notenda.
Markaðskökur (e. marketing cookies)
Markaðskökur eru notaðar til þess að skrá niður aðgerðir notenda á mismunandi vefsíðum utan þeirra vefsíðnaMenningarfélagsins sem notendur okkar heimsækja og gerir okkur kleift að birta einstaklingum sérsniðnar auglýsingar. Notkun þeirra er háð samþykki notenda. Notkun okkar á vafrakökum er mismunandi eftir því hvaða vefsíðu um ræðir, en nálgast má upplýsingar um þær vafrakökur sem notaðar eru í vafrakökuborða viðkomandi síðu.
Upplýsingar sem vafrakökur safna eru einungis notaðar í þeim tilgangi að þróa og auka gæði þeirrar þjónustu sem vefsíður okkar bjóða upp á. Vafrakökur safna upplýsingum um hvern og einn notanda sem veita okkur innsýn í þarfir og virkni hans, sem við notum til þess að sérsníða þjónustu okkar að þörfum viðkomandi. Slíkt felur í sér vinnslu á tölfræði- og persónuupplýsingum um notandann og fer aldrei fram nema með fyrirframgefnu samþykki viðkomandi. Mikilvægt er að notendur kynni sér virkni á bakvið mismunandi vafrakökur áður en samþykki er veitt.
Greinamunur er gerður á setukökum og viðvarandi vafrakökum. Setukökur eyðast almennt um leið og notendur yfirgefa vefsíðuna og eru því ekki vistaðar til lengri tíma. Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu eða annan búnað sem notaður er til að heimsækja vefsíðuna og eru til þess gerðar að muna aðgerðir eða val viðkomandi. Viðvarandi vafrakökur vistast til lengri tíma.
Upplýsingar um virknitíma vafrakaka er að finna í vafrakökuborða hverrar vefsíðu fyrir sig.
Notendur geta stýrt vafrakökunotkun á vefsíðum okkar með eftirfarandi hætti:
- með því að veita ekki samþykki fyrir notkun þeirra;
- með vafrakökustillingum á viðkomandi vefsíðu, eða
- með vafrakökustillingum í þeim vafra sem notaður er til að heimsækja vefsíðuna.
Hafi notandi samþykkt vafrakökur getur hann afturkallað samþykki sitt hvenær sem er. Á vefsíðum okkar bjóðum við upp á að notendur geti sjálfir stillt notkun á vafrakökum, bæði í vafrakökuborða sem birtist þegar vefsíða er heimsótt í fyrsta skipti og með sérstakri vafrakökustillingarviðbót sem finna má á öllum vefsíðum.
Vafrakökustefna þessi getur tekið breytingum í samræmi við breytingar á viðeigandi lögum eða reglugerðum. Að auki er mögulegt að Menningarfélag Akureyrar notist í framtíðinni við aðrar vafrakökur en nú er gert. Notendur verða upplýstir um notkun á nýjum vafrakökum á vefsíðum okkar og óskað verður eftir samþykki fyrir notkun þeirra, eftir því sem við á.
Samþykkt 14. ágúst 2025