BaKaBa – Kvartettfjör að vori

✨Fjörugt vorprógramm strengjakvartetts Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands þar sem þrjú tónskáld mætast.

Svið

Hof – Hamrar

Tónskáld

J.S. Bach, Karólína Eiríksdóttir, Béla Bartók

Verð

5.900 kr
Kaupa miða

Ferskt, fyndið og skemmtilegt!

✨Fúgulistin eftir J.S. Bach má heita drauma tónsmíð allra tíma. Hún er sem kaleidóskóp; innihaldið speglast, vendist og umsnýst á alla kanta í ótal mynstur, hvert öðru fallegra. Leiknir verða valdir kontrapunktar úr verkinu.Sex lög fyrir strengjakvartett eftir Karólínu Eiríksdóttur eru óútreiknanleg og margbrotin eins og vorið sjálft. Við heilsum birtu, veðrum og uppátækjum íslenska vorsins með tónum Karólínu.Strengjakvartettar Béla Bartók eru meðal höfuðsmíða kvartettbókmenntanna. Hér verður sá fyrsti leikinn, op. 7 í a-moll. Undir liggur lúmsk áætlun kvartettsins um að flytja þá alla sex hægt og bítandi, einn af öðrum. Þá er best að vera með og hlusta strax frá byrjun.
Flytjendur:
Greta Salóme Stefánsdóttir, fiðla, Marteinn J. Ingvason Lazarz, fiðla, Eydís Úlfarsdóttir, víóla, Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, selló

Secret Link