Birtíngur
Bráðskemmtileg, filterslaus rokkóperetta um hörmungar og dauða
Staðsetning
Leikstjórn
Sýning fyrir alla sem elska leikhús, söngleiki, kaldhæðni og svartan húmor!
Bráðskemmtileg, filterslaus rokkóperetta um hörmungar og dauða
Viðvörun:
Verkið inniheldur senur um viðkvæm málefni og er bannað börnum. Til þess að spilla ekki fyrir upplifun þinni af verkinu hvetjum við þig til að fá nánari upplýsingar um sýninguna fyrirfram teljir þú að eitthvað gæti vakið upp óþægileg viðbrögð sem þú vilt forðast. Vinsamlegast hafið samband við midasala@mak.is
5 leikarar
32 hlutverk
10 manna hljómsveit frá Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
12 ný lög eftir Þorvald Bjarna
14 áfangastaðir
3 kossar
Óteljandi morð
Nokkrar upprisur
2ja mánaða sýningatímabil
Þú vilt ekki missa af þessu!
Tónlist: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
Birtíngur, ungur, óspilltur sakleysingi sem gerður er brottrækur frá bernskuslóðum sínum vegna ástar á hinni æðislegu Kúnígúnd, þvælist um heiminn og lendir í jarðskjálftum, stríðum, hýðingum, þrældómi og því skelfingaróhappi að stinga menn á hol. Þrátt fyrir þetta allt reynir hann að tileinka sér þá lífsspeki kennara síns, Altúngu, að allt sé í besta lagi. Reyndar segir Altunga orðrétt: ,,…þeir sem segja að allt sé í lagi eru hálfvitar, maður á að segja að allt sé í allrabesta lagi.” Birtíngur gefst því ekki upp á leit sinni að ástinni og vonast til að finna hina fögru Kúnígúnd á ný.
Birtingur, eftir Voltaire er ein frægasta háðsádeila sögunnar um stríð, ofbeldi, misskiptingu og óréttlæti heimsins. Hér er líka fjallað um fegurð, hjátrú, valdníðslu og harðstjórn með nístandi svörtum húmor. Allt til að komast að þeirri einföldu niðurstöðu að maður verði að rækta garðinn sinn.
Hér leiða saman hesta sína Bergur Þór Ingólfsson leikstjóri, sem hefur leikstýrt stórsýningum eins og Mary Poppins, Billy Elliot og Bláa hnettinum, og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson tónskáld, sem þekktur er meðal annars fyrir tónlist sína í Ávaxtakörfunni, Benedikt búálfi, Gosa og hljómsveitinni Todmobile, ásamt glæsilegum leikhópi Leikfélags Akureyrar.
Höfundur: Voltaire
Frumsýnt 26. febrúar 2026
Tengdar fréttir
Sjá allar fréttirBirtíngur verður rokkóperetta með lögum eftir Þorvald Bjarna
Verið er að semja 12 ný lög fyrir rokkóperettunaBirtíngur sem er uppsetning byggð á klassísku verki Voltaires, nú í nýrri og kraftmikilli leikgerð Bergs Þórs Ingólfssonar. Þar er heldur betur verið að blása fersku lífi í söguna með nýjum lögum eftir meistara söngleikjanna, Þorvald Bjarna Þorvaldsson, sem samdi tónlistina fyrir t.a.m. Ávaxtakörfuna, Benedikt Búálf, Hafið
Allt litróf leikhússins framundan hjá Leikfélagi Akureyrar
Þó svo að frábæru ári sé nú lokið hjá Leikfélagi Akureyrar er síður en svo verið að slaka á með fætur upp í loft og eggjapúns um hönd. Nú stendur yfir undirbúningur á risastóru verkefni þar sem 5 leikarar munu leika 32 hlutverk sem ferðast munu á 14 áfangastaði þar sem 3 kossar og óteljandi
Birtíngur – Innlit á æfingu
Það er líf og fjör á æfingum á Birtíngi um þessar mundir! Söngur, flugæfingar, búningamátanir, myndatökur og fleira og fleira. Við deilum hér nokkrum skemmtilegum myndum frá æfingu Spenningurinn er orðinn mikill – ertu búinn að tryggja þér miða? EINUNGIS sýnt í febrúar og mars! Miðasala hér


